ID Space Vizzion hugmyndabíllinn boðar þriðja rafbílinn frá Volkswagen
LOS ANGELES – Hugmynd að rafknúnu ökutæki sem Volkswagen kynnir á bílasýningu í Los Angeles þessa dagan, ID Space Vizzion sem er hannaður sem stationbíll eða „langbakur“ , sýnir hönnun sem líklega verður þriðji rafbíllinn í ID fjölskyldunni.
Við höfum fram að þessu aðeins séð teikningar af þessu hugmyndabíl sem er greinilega fyrirrennari þriðja fjöldaframleidda rafbílsins frá Volkswagen, en bíllinn er frumsýndur á bílasýningunni í Los Angeles sem byrjar eftir tvo daga, þann 22. nóvember og stendur til 1. desember.
ID Space Vizzion, hannaður á MEB-grunni rafbíla VW, er búinn í hugmyndaformi með 275 hestafla mótor aftan og 82 kWh rafhlöðupakka sem VW segir að muni gefa bílnum aksturssvið um 590 km samkvæmt WLTP prófunarstaðli í Evrópu og 483 km samkvæmt bandarísku EPA prófunum.
Hægt væri að festa annan 10 hestafla rafdrifinn mótor á framásinn til að veita drif á öllum hjólum, segir VW.
Kemur á markað seinni hluta 2021
VW segir að framleiðsluútgáfan verði tilbúin síðla árs 2021 og muni koma í mismunandi útgáfum fyrir Norður Ameríku, Evrópu og Kína.
Upplýsir snertifletir í stað handfanga
Hugmyndabílline er með í stað hefðbundinna hurðarhandfanga að utan með upplýsta snertifleti sem kvikna upp þegar ökumaðurinn eða farþeginn nálgast og opnar hurðina með snertingu.
Skjár í stað hefðbundinna mæla
Inni í farþegarýminu hefur mikill hluti af hefðbundni mælaborði verið fjarlægður í þágu þess sem Volkswagen kallar aukinn raunveruleika, með sprettiskjá (head-up), 15,6 tommu snertiskjá sem sýnir afþreyingu, þægindi, aðgerðir á netinu og stillingar ökutækisins. Einföld stýring hefur verið færður á handfang hægra megin við stýrisstöngina í þessum stafræna stjórnklefa.
Þunnur ljósræma á milli A-bita, sem VW kallar ID Light eða „upplýsingaljós“, hefur samskipti sjónrænt við ökumanninn með kveðju, leiðsagnarleiðbeiningum og kvaðningum varðandi hemlun, sem viðbót við heyranleg samskipti.
Áklæði úr eplasafa
Volkswagen er einnig að kynna nýtt efni í ID Space Vizzion sem þeir segja að gæti komið í framleiðslu. Þetta leðurlíka efni er kallað „Appleskin“ og var þróað hjá Volkswagen úr afgöngum úr framleiðslu á eplasafa.
„Crossover“ seint á næsta ári
Seint á næsta ári er búist við að VW muni selja ID4 „crossover“, bíl sem er svipaður að stærð og núverandi Tiguan.
Þá er búist við endurgerðri gamaldags útgáfu af VW Microbus, sem nú heitir ID Buzz, fyrir árið 2022
Aðrar umfjallanir
„Svona, hoppið nú upp í stelpur mínar. Ég skutla ykkur!“ Malín Brand man glögglega eftir því þegar Vigdís Finnbogadóttir bauð henni far á Álftanesveginum...
Flestir hér á landi þekkja Lada Sport, eða Lada Niva eins og bíllinn heitir á öðrum mörkuðum, Þessi bíll á rætur að rekja til ársins 1977 og hefur...
Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot 3008 PHEV sem er einstaklega sparneytinn 300 hestafla fjórhjóladrifinn...
Alfa Romeo mun fagna 100 ára samstarfi sínu með sérsmíðaverkstæði Zagaoto með einstökum tveggja dyra Giulia...