Alrafmagnaður Suzuki eVX á leiðinni
Nýr Suzuki eVX hugmyndabíll vísar til fyrsta alrafmagnaða bíls fyrirtækisins
Suzuki segir að framleiðsluútgáfa af rafmagnaða hugmyndabílnum muni koma árið 2025
Suzuki hefur gefið okkur fyrstu innsýn í fyrsta fullrafmagnaða bílinn sinn.
Suzuki eVX hugmyndabíllinn var frumsýndur á Auto Expo 2023 í Delhi á Indlandi og miðar að því að sameina „sterkt 4x4 DNA við háþróaða eiginleika nýjustu rafmagnsbílanna sem aðeins nota rafhlöður“, að sögn Suzuki.
Hann vísar leiðinni í átt að nýjum rafmagnsframleiðslubíl, þeim fyrsta frá japanska vörumerkinu.
Opinberar upplýsingar um nýja eVX hugmyndabílinn eru ekki miklar, en Suzuki segir að með 60kWh rafhlöðu muni bílinn ná 550 kílómetrum á einni hleðslu samkvæmt indverska MIDC prófunarferlinu.
Stærðir eVX eru í stórum dráttum svipaðar og á S-Cross sportjeppanum frá Suzuki, svo búist við að hann verði samkeppnishæfur við bíla eins og MG ZS EV og Kia Niro EV þegar hann kemur á markað árið 2025.
Gera má ráð fyrir að samstarf Toyota og Suzuki muni hafa einhver áhrif á eVX með möguleika á að Suzuki njóti góðs af þekkingu Toyota á rafbílum og deili jafnvel hlutum úr vaxandi bZ úrvali Toyota af rafknúnum ökutækjum.
Þetta er ekki eina samstarfið sem Suzuki gæti notað fyrir eVX hugmyndabílinn.
Samkvæmt InMotive er einkaleyfisskylda tæknin gerð fyrir rafbíla og getur bætt drægni og hröðunarafköst um 15 prósent.
Þrátt fyrir að fyrsti rafbíll Toyota, bZ4X, sé sportjepplingur með tveggja hjóla eða fjórhjóladrifi með útfærslum með einn eða tvo mótora, er líklegt að tilboð Suzuki verði tveggja hjóla drifinn til að halda framleiðslukostnaði niðri.
Hönnun eVX Concept beinist meira að harðgerðum sportjeppa.
Það er nóg af köntuðu yfirborði, auk þess sem það lítur út fyrir ágætis veghæð og hjólaskálar úr plasti gefa honum torfærutilbúið útlit.
Við afhjúpunina sagði forseti Suzuki, Toshihiro Suzuki: "Ég er ánægður með að afhjúpa eVX, fyrsta alþjóðlega stefnumótandi rafbílinn okkar. Hjá Suzuki Group er það forgangsverkefni að takast á við hlýnun jarðar. Við erum að kynna ýmsar alþjóðlegar ráðstafanir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda“.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Norðmönnum er margt til lista lagt, eins og öðrum mönnum. Nýverið fór fram í Lillesand, fyrsta umferð í Noregsmótinu í drifti en þetta er víst bara rétt að byrja þar. Algjört jaðarsport en þetta sem hér sést lofar virkilega góðu, að mati undirritaðrar! Eins og maður segir í Noregi (ef maður er frekar töff): „Drit kul!“
Í mínútulangri auglýsingu frá Subaru sem birt var í gær er sögð saga af ungum ævintýramanni sem óvænt finnur ástina í óbyggðum. Þokkalegasta saga og vel gerð auglýsing þar sem Subaru Forester Wilderness er laumulega í aðalhlutverki.
Porsche hefur tilkynnt að þeir hafi sett nýtt „sportjeppamet“ á Nürburgring kappasktursbrautinni með nýju öflugu útgáfunni af Porsche Cayenne. Porsche á...
Audi mun bæta Sportback-gerð við nýjustu Q5-gerðina, sem búist er við að komi í ljós síðar á þessu ári - og nýjar...