Rafbílavæðing Daga minnkar kolefnissporið um 200 tonn næstu 4 ár
Ræstinga- og fasteignaumsjónarfyrirtækið Dagar hf. tóku nýverið í þjónustu sína fjórtán nýja rafbíla af gerðinni Renault Zoe frá BL.
Rafbílavæðingin er mikilvægur hluti aðgerðaáætlunar fyrirtækisins sem hefur að markmiði að draga úr kolefnisspori Daga um 80% eða 200 tonn á næstu fjórum árum.
„Við gerum okkur grein fyrir að til þess að árangur náist í umhverfismálum sé nauðsynlegt að vinna skipulega og markvisst að nauðsynlegum aðgerðum í málaflokknum.
„Með þessari nýju fjárfestingu erum við að stíga mikilvægt skref að markmiði okkar um að vera alfarið á rafdrifnum bílum árið 2026, en alls eru um 85 bílar í flota fyrirtækisins.“
Pálmar segir Daga hafa lagt mikla áherslu á að velja samstarfsaðila sem deili sömu hugsjón í umhverfismálum og hafi því ákveðið að leita til BL þegar kom að því að finna hentuga rafmagnsbíla sem mætt geti sem best þörfum fyrirtækisins.
Á myndinni eru f.v. Jóhann Berg Þorgersson sölumaður atvinnubíla hjá BL, Finnbogi Gylfason, fjármálastjóri Daga, Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Daga, og Knútur Steinn Kárason, vörumerkjastjóri á sölusviði BL.
(fréttatilkynning frá BL)
Aðrar umfjallanir
Það var ekki vandalaust að vera með flotta hjólkoppa á bílum á Íslandi hér áður fyrr, því vondir vegir með holum og skorningum urðu til þess að kopparnir vildu fljúga af, og oft mátti sjá glampa á gljáfægða hjólkoppa í vegaköntum þegar farið var í sunnudagsbíltúrinn.
Um 1890 fann Rudolf Diesel upp skilvirkan brunahreyfil með þjöppukveikju.
Að sprengja framdekk þegar ekið er á fullri fart er aldrei gaman. En það er ágætt að vera búinn að undirbúa sig í huganum þannig að fyrstu viðbrögð verði ekki þau að stíga á bremsuna. Það gerir vont enn verra!
Flutningabíllinn Tesla Semi hefur verið á „leiðinni“ á markað í mörg ár. Og enn tefst hann um rúmt ár eða tvö til viðbótar.