Nýr BMW i5 sást sem alrafmagnsbíll
BMW mun bjóða upp á komandi i5 með hagnýtri „Touring“ yfirbyggingu
Næsta kynslóð BMW 5 Seríu mun hljóta róttækustu uppfærslu í sögu sinni með tilkomu á hreinni rafknúinni i5 gerð.
Við höfum séð bílinn prófaðan áður í fólksbíls-gerð en nú höfum við staðfestingu á því að hann verði einnig í boði sem stationbíll, eða „langbakur“ eins og sumir vilja kalla þess gerð bíla.
BMW er vel á veg komin með þróun fyrstu alrafmögnuðu 5-línunnar með i5 og við getum búist við fullri birtingu einhvern tíma árið 2023.
Eins og við höfum séð áður með fólksbílinn, mun i5 stationbíllinn ekki aðgreina sig of mikið frá 5 Seríu Touring með brunahreyfli.
Neðst á hlið bílsins sjáum við innfelld hurðarhandföng sem hjálpa til við að bæta loftaflfræðilegan mótstöðustuðul og nýja hönnun á sjö arma álfelgum.
Fyrir utan aukamassa stationbílsins að aftan lítur hann í stórum dráttum út eins og fólksbíllinn með sömu afturljósum.
Hér svo ein mynd af fólksbílsgerðinni af i5.
i5 mun deila sömu CLAR-einingum og núverandi 5-lína með brunahreyfli.
Komandi 5 serían, með kóðanafninu G60, verður ein af síðustu nýjum gerðum BMW áður en ökutæki þeirra af „Neue Klasse“ kynslóð fara á markað frá og með 2025, líklega leidd af rafmagnsskiptum fyrir 3 seríuna og X5 jeppann.
Við ættum að sjá upphafsgerð i5 eDrive40 með 80,7kWh rafhlöðu og einum mótor að aftan sem framleiðir um 335bhp og 430Nm tog.
BMW Group hefur þegar staðfest að það muni setja á markað 25 nýjar rafknúnar gerðir af bílum sínum - og um það bil helmingur þeirra bíla mun hætta með brunavélar.
Við höfum þegar séð iX1 ganga til liðs við X1 á þessu ári og nýja rafknúna i7 ganga til liðs við flaggskipið 7 Series saloon.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Á þremur mínútum er gamla rafhlaðan tekin úr og ný fullhlaðin komin í staðinn.
Í mínútulangri auglýsingu frá Subaru sem birt var í gær er sögð saga af ungum ævintýramanni sem óvænt finnur ástina í óbyggðum. Þokkalegasta saga og vel gerð auglýsing þar sem Subaru Forester Wilderness er laumulega í aðalhlutverki.
Við erum loksins að fara að já hinn nýja Ford Bronco 2021 í næstu viku þegar hann verður frumsýndur mánudaginn 13. júlí...
Porsche og teiknimyndaframleiðandinn Pixar unnu að alveg spes bíl en það er Porsche 911 Sally Carrera Edition. Sally er bíll úr teiknimyndinni Cars og er þetta því raunverulegur bíll byggður á þeim úr teiknimyndinni. Bíllinn var seldur á góðgerðaruppboði fyrir svimandi upphæð.