- Volkswagen ID. Buzz 2023 er í prófunum í vetrarakstri í snjónum á Norðurlöndunum og nú er nánast enginn felulitur eftir.
Þegar við vorum að vafra á bílavefslóðum var eins og margar bílavefsíður hafi heillast af því sama: Það voru að birtast „njósnamyndir“ af Volkswagen ID. Buzz sem er rafmagnaður arftaki gamla VW „rúgbrauðsins“!
Með límband aðeins yfir merkin er þetta skýrasta útlitið til þessa á væntanlegum rafknúnum fólksflutningabíl Volkswagen, sem á að koma á markað í Evrópu árið 2022.
Að framan eru ljósin eins og þau verða væntanlega í framleiðsluútgáfunni, og með kringlóttum þokuljósum neðar. Það er aðeins lítið loftinntak neðst á framendanum þar sem rafdrifið og rafhlöðupakkinn þarfnast ekki eins mikillar loftræstingar og hefðbundin brunaaflrás.
Bíllinn er á fimm arma álfelgum með nýju útliti, næstum eins og Mk5 Golf GTI, og það er rennihurð á hvorri hlið.
Aftan á ID Buzz er stór afturhleri ásamt dráttarbeisli. Við vitum ekki enn hversu mikið bíllinn á að geta dregið. Talandi um drátt, ID. Buzz mun einnig eiga „systurútgáfu“, ID. Cargo, til farmflutninga.
Volkswagen kynnti nýlega ID. Buzz samhliða opinberum kynningum á ID.5 og ID.5 GTX en að vísu þá í regnbogafelulitum.
Aðrar umfjallanir
Ford er að endurbæta markaðssetningu sína í Evrópu með slagorðinu „Ævintýralegur andi eða Adventurous Spirit“
Ávörðunin endurspeglar áherslur Ola Kallenius forstjóra Mercedes á rafbíla, þar sem bílaframleiðandinn hverfur frá bílum með brunahreyfla.
Gaurarnir hjá The Straight Pipes tóku nokkra góða spretti á völdum sporturum. Hvaða bílar finnst þér hljóma best?
Bílaframleiðendur leggja oft mikla áherslu á að koma með grípandi nafn á nýjar gerðir sínar...