Í síðustu viku rifjuðum við upp rammíslenska fyndni sem – að sjálfsögðu – tengist bílum. Radíusbræður og Fóstbræður komu við sögu og nú er ekki hægt að láta þar við sitja. Þessir menn, hvort sem þeir eru Radíus- eða Fóstbræður, hafa gert svo óheyrilega margt sniðugt!
Bregðum okkur á rúntinn með Fóstbræðrum þar sem nafntogaðir einstaklingar eru til umræðu. Svo ekki sé meira sagt!
Ekki missa af þessum tveimur: Fóstbræður: „Útvarp og segulband?“
„Ertu klikkaður?“ Bílasali brjálast
Aðrar umfjallanir
Á meðan Chevrolet var til sölu hjá Bílabúð Benna var smábíllinn Spark vinsæll meðal kaupenda; lítill snaggaralegur bíll með dágott notagildi. En nú er hann að renna sitt skeið á enda í Bandaríkjunum líka.
Til að marka lok framleiðslu á DBS-bílnum hefur 770 Ultimate komið með látum inn sem öflugasti framleiðslubíll Aston frá upphafi...
Þann 14. júlí verður Hyundai Ioniq 6 frumsýndur í Suður-Kóreu en fyrir fáeinum dögum birti framleiðandinn örstutt myndband þar sem fólksbíllinn er kallaður „Electrified Streamliner“. Það sem sést hefur af bílnum gefur einmitt almennilega straumlínulögun til kynna.
Þessi gamla frú telur það nú óþarfa að maðurinn geri einhverja rellu út af einni beyglu. Hann geti nú bara reddað þessu með drullusokki. Það sé nú hreinn hægðarleikur!