Næsta kynslóð Mercedes E-Class mun halda sig við brunavélar
Mercedes ætlar að setja á markað nýjan E-Class árið 2023 og hann mun koma með bensín, dísel og tengitvinn aflrásum
Næsti Mercedes E-Class kemur árið 2023 og á tímum raf-endurfæðingar fyrir þýska vörumerkið mun hann reyna að sanna að uppáhalds Benzar með brunavél eru enn mikilvægir.
Nýjar E-Class þróunarfrumgerðir hafa sést á þjóðvegum í Evrópu, þar sem Mercedes gírar sig til að skipta út einni vinsælustu og þekktustu gerð sinni.
Nafnið hefur verið við lýði í næstum 30 ár sem aðalfólksbíll Mercedes, og þó sala á þessum gerðum sé að minnka og færast yfir til jeppa, er þetta enn mest seldi fjögurra dyra Mercedes-bíllinn, sem stóð fyrir 16 prósentum viðskipta vörumerkisins árið 2020, með yfir 300.000 sölur. Og það á tímum mikillar óvissu á alþjóðamarkaði.
Þróunarbílarnir sem sést hafa í akstri voru ekki með mikið af felulitum og það er ástæða fyrir því. Útlit nýja E-Class mun ekki marka róttækt frávik frá nýjusu C-Class og S-Class vörumerkisins.
Útlitið mun verða áþekkt í þessum þremur fólksbílum vörumerkisins, en tæknin sem knýr skjáina verður mismunandi milli gerða.
C-Class og S-Class eru mismunandi hvað varðar skjástærðir sem þeir bjóða upp á og tæknina á bak við þá. Líklegt er að E-Class komi með 11,9 tommu skjá sem staðalbúnað en verður valfrjáls í C-Class, með 12,9 tommu OLED spjaldi frá S-Class.
Mikið af þessari nýju farrýmistækni verður gerð möguleg með því að flytjast yfir á Mercedes MRA2 grunninn; þessi arkitektúr gerir E-Class kleift að taka stórt stökk fram á við þegar kemur að rafvæðingu.
Nýr E 300 e mun sameina 2,0 lítra bensínvél með forþjöppu með þessari nýju tækni, sem gerir kleift að ná meira en um 100 km drægni á rafhlöðuorku.
Hvað AMG hefur í huga fyrir nýja E-Class er enn óþekkt, þó að afkastamiklar útgáfur af næstu gerð komi stuttu eftir að kjarnabíllinn kemur á markað.
(frétt og myndir: Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Við sem búum á þessu landi megum eiga það að vera frekar sniðugt jeppafólk. Margslungið veðurfarið gefur okkur ekki bara byr undir báða vængi heldur blæs það stundum öllu hreinlega um koll. Þá er nú gott að eiga góðan jeppa. Toyota hefur haldið jeppasýningar um árabil og nú er komið að sýningunni 2022.
Kia er mest selda bílamerkið yfir fólksbíla árið 2021 á Íslandi. Kia er með 1.826 nýskráða bíla hér á landi á árinu og er með 14,3% hlutdeild...
Það var svo einhvern tímann þegar Dick Teague sat í flugvél yfir Bandaríkjunum að hann teiknaði frumdrög bílsins aftan á ælupoka. Hann einfaldlega...
Í þessari bráðskemmtilegu grein lýsir blaðamaðurinn Jóhannes Reykdal bernskuminningu: Þegar hann sá æði nýstárlegan bíl sem nágranni afa hans og ömmu átti. Nágranninn átti Coca Cola á Íslandi og líka þennan stórmerkilega Tatra!