„Það hræðilegasta af öllu er að þetta getur konan gert á meðan þú ert í vinnunni. Ekki nóg með að hún geti valið hvaða lit sem rúmast í hálftómum en fallegum kollinum á henni, heldur getur hún fengið neglurnar á sér lakkaðar í nákvæmlega sama lit!“
Skjáskot/YouTube
Þessu ryður þulurinn út úr sínum bólstraða tranti undir myndbandinu sem hér fylgir. Þetta er enskt myndbrot frá árinu 1964 þar sem Haydon Auto Painting System er kynnt til sögunnar. Svo einfalt að „jafnvel konan“ ræður við að láta sprauta bílinn.
Eins og að lita á sér hárið
Áhyggjur eiginmannsins kviknuðu fyrst (segir þulurinn í myndbandinu) þegar það reyndist ekki einu sinni dýrt að láta sprauta bílinn í öðrum lit. Ekki skánaði það þegar konan var svo fljót að velja litinn á lakkinu að það var hreinlega eins og hún væri að fara að lita á sér hárið.
Nei, það var örugglega eitthvað bogið við þetta.
Held ég að þeir sem þetta bjuggu til fyrir 58 árum myndu aldeilis hrökkva í kút (og jafnvel hrökkva upp af standinum ef það væri ekki þegar orðið of seint) ef þeir myndu mæta með bílinn á réttingaverkstæði nútímans þar sem KONA sprautaði bílinn þeirra!
Hjálp! Ljósmynd/Unsplash
Tengdar greinar:
Aðrar umfjallanir
Lexus stefnir á bílasýninguna Tokyo Auto Show í Tókýó 2023 og útivistarsýninguna í Tókýó um helgina með Lexus RZ hugmyndabíl og sérstakar gerðir útivistarfarartækja
Tjah, það er nú það. Sem sérlegur BMW-áhugamaður var ég að vonum spennt að skoða nýjasta útspil M-sins en það er kynningarmyndband fyrir aðra kynslóð BMW M2. Myndbandið höfðaði ekki til mín en kannski finnst öðrum það geggjað!
Fólksvagninn, Volkswagen, VW, Bjallan… Bjöllur heimsins eru fjölmargar og ekkert furðulegt að enn sé góður slatti til af þeim 21,529,464 sem framleiddar voru frá 1938 til 2003. En ekki eru þær þó alls staðar kallaðar bjöllur með vísan til skordýrsins. Alls ekki!
Þeir eru flinkir ökumenn, en geta þeir keppt í „bakkakstri“? Það er að segja ekið aftur á bak? Hér má sjá þá Max Verstappen og Yuki Tsunoda í Zandvoort þar sem sem þeir aka DAF Variomatic en bílarnir komast upp í allt að 120 km/klst aftur á bak.