Flytjum við næst í bílinn?
LG er ekki eina stórfyrirtækið sem kroppar í kantana á bílageiranum. Í gær sögðum við frá Sony bíl sem er í raun Playstation á hjólum.
Hugmyndasmíðin byggir einmitt á því að tengja saman heimili og bíl. Útlitið minnir óneitanlega á lítinn sendibíl eða Van.
Þetta kvikindi virðist hafa ökumannsæti (sést á einni myndinni), það eru jú hjól undir bílnum og gluggar eru jú á honum en LG hefur ekki gefið neitt frekar út um fyrirbærið. Við bíðum bara.
Í staðinn fyrir spekka um tækið sendi LG frá sér nokkrar myndir. Til að byrja með notar LG þetta sem sýningarrými fyrir heimilstækin sín. Þarna er ísskápur, míníbar og stórir skjáir.
Miðrýmið er með „setustofu” með hallandi sætum; nokkurs konar körfustólum.
„Bíllinn"er búinn tæknibúnaði sem styður sýndarveruleika á skjá sem nær frá gólfi og upp í þak. Sýndarveruleikakerfið notar raunverulegan áhrifavald sem aðstoðarmann – eins og Apple notar Siri. Sú heitir víst Reah Keem og er ansi þekkt í Asíu. Hún býður svipaða hjálp og Siri, vinkona Apple notenda.
Þetta er svona það helsta sem við vitum um Omnipod. Kannski maður geti haldið skötuveislu í svona tæki árið 2030 – jafnvel fyrr!
Aðrar umfjallanir
Hundrað amerískir bílar, settir saman af Íslendingum, og það á Mýrdalssandi! Er þetta ekki alveg með ólíkindum? Er þetta einhver della sem blaðamanni datt í hug að hrella lesendur Bílabloggs með? Nei, alls ekki lesendur góðir. Þetta er dagsatt.
Allir sem eldri eru muna vel eftir Datsun-vörumerkinu sem Ingvar Helgason seldi hér á árum áður, en nafnið datt út árið 1983 og Nissan nafnið tekið upp í staðinn. Til stóð að endurlífga vörumerkið en það mistókst og nú kveður Datsun í hinsta sinn.
Nei, þetta er ekki klippa úr sýrukenndri Bítlamynd þó manni líði líkt og marandi í kafi um borð í Yellow Submarine eða á hægferð í Magical Mystery Tour og komist ekki út. Nei, lesendur góðir þetta er bíll sem eitthvað sýrubaðað hefur komið nálægt og þarna er hann í stúdíói BBC.
Umferðaróhöppin sem verða á hraðbrautum heimsins geta verið býsna óhugnanleg. Sjaldnast eiga þó mannlaus ökutæki hlut að máli en þannig var það í þessu tilviki er hér greinir frá.