Sony bíll með Playstation á næstunni?
Jæja, Sony er að kannski að fara í bílana. Fyrir fyrirtæki sem hélt því fram að það hefði ekki nokkurn áhuga né vilja til að verða bílaframleiðandi kemur smá á óvart að þeir hafi nýverið kynnt tvær tæknihlaðnar týpur af bílum.
Er þetta ekki svolítið eins og að Grandi færi að opna veitingastaði í togurum sínum?
En bílarnir eru bara nokkuð flottir. Ekkert líkir Playstation leikjatölvu allavega. Þeir kalla fyrirbærið Vision S og síðan S 01 og S 02 – frekar einfalt bara.
Vision S 02 er hinn laglegasti bíll en hæð undir lægsta punkt er rétt um 16 sm. Orðum þetta aðeins öðruvísi. Aðeins styttri og aðeins breiðari en Mercedes GLE og um 50 kg. þyngri en Ford Expedition (hann er þungur).
Smá „Kona svipur“ á þessum bíl?
Búinn tveimur rafmótorum sem gefa um 270 hestöfl, aldrifi og áætlað að hann komist að hámarki upp í 180 km. hraða.
Sony er því ekkert á höttunum eftir verðlaunasæti á Nurburgring – það er tæknin sem talar í þessum bílum. 360° gráðu myndavélin er búin LIDAR tækni sem virkar svipað og laser sem endurkastast af hlutum í kringum hann. Kerfið býður reyndar ekki upp á fulla sjálfvirkni en verið er að undirbúa leyfi fyrir sjálfkeyrandi akstur (level 2+) í Evrópu.
Minnir eilítið á sambland af Honda EV og Mercedes EQS. Ef til vill smá Porsche Taycan.
Bara pláss eins og í Tesla Y, nei ekki alveg kannski.
Verkfræðingar Sony segja að það styttist óðum í 100% sjálfvirkan akstur og verið er að gera tilraunir með 5G tengingar en þær eru með afar lítinn biðtíma á flutningi gagna.
Sony hefur sérhæft sig í tæknibúnaði eins og við þekkjum þannig að sjálfkeyrandi bílar eru svo sem ekkert svo langt frá þeirra sviði – en yfirleitt bara í þykjustunni, í leikjum og afþreyingarbúnaði.
Hljómkerfi í sætunum.
Sko, bíllinn er með hljóðgervil sem þú stýrir sjálfur, velur í honum hljóð í akstri og svoleiðis. Hátalarar eru innbygðir í sæti bílsins og eru hluti af þrívíddarhönnuðu hljóðkerfinu. Að sjálfsögðu er hægt að horfa á bíó í bílnum, annað væri nú skrítið bara. Stafræn myndbandstækni sem kölluð er Bravia Core flytur myndir í aflangan skjá fyrir farþega fram í (ekki hugsað fyrir bílstjórann) og sér skjái fyrir aftursætisfarþegana.
Mamma, pabbi, afi og amma og þrír gríslingar.
Jú, það er hægt að spila Playstation leiki. Og þú þarft ekki að taka tölvuna með þér – bíllinn tengist henni í gegnum netið. Og leikirnir eru svo bara í skýinu.
Byggt á grein á Autoblog
Aðrar umfjallanir
Í meðfylgjandi myndbandi er Ferrari F430 Scuderia tekinn í „frumeindir“ og hann endursmíðaður. Reyndar brá mér alveg hroðalega í lokin þegar liturinn kom í ljós. Má þetta? Hvað segja lesendur? Og hvað myndi Ferrari segja?
Það er þá svona sem 240 hestafla Ford Anglia Cosworth BDG hljómar á góðum degi!
Þegar röðin kemur að alvöru öflugum sportbílum eru fáir sem fá meiri athygli áhugamanna en nýr Porsche 911 GT3 - og þetta er nýjasti ofurbíllinn...
Það var búið að tilkynna íbúum við Huntley Street í Darlington með góðum fyrirvara að þann 10. maí yrði gatan malbikuð og voru skilti hér og þar með upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir. Íbúar áttu að færa bílana sína og það gerðu þeir. Allir nema einn. Einn BMW var ekki færður og hvað þá?