Jæja, allir í Don Cano gallana og strákar mega endilega vera með sítt að aftan! Og stelpur líka. Snjóþvegnar gallabuxur eru velkomnar.
Jú, og bíllinn heitir ekki Bluebird heldur Newbird.
Það má eiginlega segja að smíði bílsins sé gjörningur. Hann er minnisvarði á vegferð framleiðandans.
Margt breytt á 35 árum
- Frá því verksmiðjan tók til starfa í september 1986 hafa 10.5 milljónir bíla komið af færibandinu þar.
- Í upphafi voru starfsmenn 430 en nú eru þeir um 6000 talsins.
- Fyrsti bíllinn sem sveif af færibandi verksmiðjunnar var einmitt Bluebird og er það eintak varðveitt á safni í nágrenninu.
- Bluebird var framleiddur í 187.178 eintökum á árunum 1986 til 1990 og framleiðslutími hvers bíls var um 22 klst.
- Í dag er framleiðslutími fyrir hvern Nissan LEAF á sama stað 10 stundir og meira en 200.000 eintök hafa verið framleidd.
Hvernig var þessi Newbird smíðaður? Jú, hér neðst (fyrir neðan allar myndinar) er myndband þar sem fræðast má um það.
Tímamótunum er fagnað með mjög svo „eighties“ grip sem er í raun endurgerð af Nissan Bluebird. 19 starfsmenn af þeim 430 sem hófu störf um leið og verksmiðjan, starfa þar enn. Hér eru nokkrir þeirrra.
Bíllinn er 100% „eighties“ í útliti og svo er hann nefnilega 100% rafknúinn og nýtir þar drifrás Nissan LEAF.
Bíllinn er smíðaður í sömu verksmiðju og fyrsti Bluebird-inn. Það er gert í tilefni þessara tímamótum. Útlitið er gamalt en hugsunin og tæknin ný. Og fjöldi framleiðslueininga er 1. Einn bíll. Eitt listaverk.
Aðrar umfjallanir
Mika Häkkinen er kannski ekki „gamall“ en hann býr yfir reynslu eins og „gamall vitur karl“. Þess vegna hugsa ég að ungir ökumenn taki mikið mark á Mika „gamla“ Häkkinen, í þau fáu skipti sem hann tjáir sig opinberlega um gang Formúlu 1.
Það vakti nokkra athygli þegar James Dyson - ríkasti maður Bretlands – (hann er orðinn einn ríkasti maður Bretlands með því að búa til ryksugur) sagðist ætla...
Ekki er gott að segja hvort Ford Mustang 2024 sé ætlað að ryðjast nógu hrossalega á markað að allir beinlínis gleymi að rafjepplingurinn Mach-E fékk bæði nafnið og merkið að láni. Hver svo sem hugsunin kann að vera þá hefst markaðsátakið með látum!
Í Toyota Tacoma er gert ráð fyrir fimm manns. Bílstjóra og í mesta lagi fjórum farþegum. Það skýrir þó ekki af hverju í honum eru 13 glasahaldarar! Eru bílahönnuðir í glasi eða hvað er eiginlega að frétta?