Wrist tvist stýrið
Árið 1965 datt mönnum í hug að finna upp hjólið – aftur. Það sást bara miklu betur á mælaborðið, þú gast slakað á við aksturinn, þurftir ekki að snúa stóru stýrishjóli og þreytast þannig í handleggjum og úlnliðum. Hér er grein um þetta sérstaka „stýri“.
Eins gott að festa ekki þumlana í litlu hringjunum.
Snúningssæti
Á milli 1950 og 1960 voru sett snúningssæti í nokkra ameríska bíla. Sæti þessi áttu að gera „karlmanninum auðveldara fyrir að stíga út úr bílnum auk þess sem það yrði minna átak fyrir kvenmanninn,“ samkvæmt auglýsingum þess tíma.
Chrysler, Ford og Chevrolet settu snúningssæti í einhverja bíla sína á tímabilinu.
Þetta er kannski ekki svo vitlaus hugmynd - en tryggja þyrfti að sætið væri fast í akstri.
Vatnsfylltir stuðarar
Á sjöunda áratugnum kom upp sú hugmynd að gott gæti verið að dempa högginn við aftanákeyrslu með því að fylla stuðarann af vatni.
Hér hefur náðst mynd akkúrat þegar bíllinn sprengdi vatnsstuðarann.
Snúningsstýrið
Hvers vegna að hreyfa sætin ef þú gast fært stýrið? Hugmyndin sást fyrst hjá Ford í glæsilegum Ford Thunderbird árgerð 1961.
Stýrið var hægt að hreyfa í báðar áttir - hægri og vintstri. Var þetta kallað veltistýri?
Vínyl topparnir
Til hvers að hafa topp úr plasti þegar hægt er að hafa hann úr stáli og lakkaðan? Jú, eflaust flott en á mörgum stöðum á jörðinni bráðna vinyltoppar hreinlega á bílum. Erfitt er að gera við þá og bölvað vesen að halda þessu hreinu og fínu.
Hér er Manta með vínyltopp.
Plötuspilarar í mælaborðinu
Einhverjum datt í hug að hafa ekki bara útvarp í mælaborðinu heldur líka plötuspilara. Það þarf ekki að fjölyrða um að þessi hugmynd var algjört flopp. Hér er grein um bílaplötuspilarana.
Spurning hvort þetta hefði hentað á Þorskafjarðarheiðinni í gamla daga?
Minibar í hanskahólfinu
Það er ekkert afleit hugmynd að vera með bar í bílnum. Hins vegar gæti verið að hanskahólfið væri ekkert endilega besti staðurinn. Cadillac Eldorado Brougham árgerð 1957 var með slíkan bar og jafnvel var hægt að fá klakabox með.
Það lukkaðist ekki vel að fá sér drykk á ferð. En þetta sést í bílum enn í dag.
Mörgum finnst kósý að stoppa á langferðum og fá sér í glas.
Frystir fyrir klakana í vélarvana Toyotu
Á níunda áratugnum kom nokkuð klikkuð hugmynd á markað frá Toyota. Þeir settu Toyota Minivan á markað í Bandaríkjunum. Bíllinn var boðinn með 90 hestafla vél og frysti fyrir klaka. Af hverju ekki að setja bara frysti þarna frammí ?
Það er ekkert betra en ískalt kók með klaka.
Aukasæti á pallinum
Þið munið eflaust eftir Subaru pallbílnum. Frekar asnalegur bíll. Bandaríkjamenn vildu sporna við samkeppni á áttunda áratugnum og lögðu skatt á slíka bíla. Og til að fara framhjá þessum skatti varð bíllinn að vera með sæti fyrir þrjá farþega.
Subaru nefndi bílinn Brat og boltaði niður tvo plaststóla á pallinn og seldi bílinn síðan grimmt í henni Ameríku.
Ertu með öryggisbeltið spennt?
Lightning rod shifter, þrjár gírstangir
Til að gera einfalda hluti flókna þarf oft hugmyndaauðgi. Þriggja gírstanga skiptingin varð aldrei vinsæl. Í hvaða gírstöng á maður að grípa? Lightning rod shifter var búnaður sem gerði nákvæmlega það sama og búnaður með eina gírstöng.
Það eina sem þú verður að muna er að setja ekki í P á ferð.
Þessu náskylt:
[Birtist fyrst í desember 2021]
Aðrar umfjallanir
Enn höldum við áfram að skoða hugmyndabíla sem voru allir sérstæðir - 3/4
Það er nokkuð ljóst að hæfileikar Elons Musk liggja víða en þó ekki á danssviðinu. Í það minnsta hefur hann ekki lært sporin á dansgólfinu hjá Heiðari heitnum Ástvaldssyni sem kenndi dans á Íslandi í hálfa öld.
Í smábænum Sayulita í Mexíkó hefur gamalt VW rúgbrauð fengið helst til óhefðbundið hlutverk. Nú gegnir það hlutverki lyftu og verður sú lyfta að teljast fallegri en lyftur almennt. Eða hvað finnst ykkur?
Hjólhýsi í umferðinni eru oftar en ekki óvinsæl því þau fara pínlega hægt yfir, tefja aðra og takmarka útsýni bílstjóra, farþega og já bara allra í kring. Þess vegna keppast menn um að klessa þau í klessu í þar til gerðri keppni!