Dómur genginn í máli ON
ON hafði betur og fær að opna Hverfahleðslurnar
„Þetta er fyrst og fremst mikið gleðiefni fyrir þá fjölmörgu rafbílaeigendur sem treysta á þessa þjónustu. Það var alveg ljóst í okkar huga að forsendurnar fyrir niðurstöðu kærunefndar væru rangar og því ákváðum við að láta reyna á þetta fyrir dómi,“ segir Berglind Rán Ólafsdottir framkvæmdastýra ON.
Í kjölfarið var Orku náttúrunnar, sem vann útboðið á sínum tíma, gert að slökkva á hleðslunum.
Fallist á sjónarmið ON
Eftir að hafa rýnt í úrskurð kærunefndar taldi ON ljóst að forsendur nefndarinnar fyrir niðurstöðunni væru rangar. Því var ákveðið að fara með málið fyrir héraðsdóm til þess að fá úrskurðinum hnekkt. Flýtimeðferð fékkst á dómsmálinu og í dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á sjónarmið ON segir á vef ON um málið.
Eðlilegt að reyna á úrskurð sem þennan
Bílablogg leitaði til Sigurðar Ástgeirssonar hjá Ísorku sem sagði að það hafi verið eðlilegt að reyna á úrskurð sem þennan fyrir dómi enda málið flókið og án fordæma. „Dómurinn snýr ákvörðun kærunefndar og gerir þann úrskurð ógildan.
Ég hef reyndar ekki náð að lesa dóminn í heild sinni en það fylgir því léttir að rafbílaeigendur geti notað stöðvarnar að nýju”, sagði Sigurður.
Hverfahleðslurnar sem hafa verið ótengdar síðan í lok júní verða tengdar á ný strax í vikunni. Til þess að þessi endurnýjuðu kynni rafbílaeigenda af Hverfahleðslum ON gangi sem best fyrir sig hefur fyrirtækið ákveðið að frá og með föstudeginum 26.nóvember verði frítt að hlaða í öllum Hverfahleðslum ON út mánuðinn.
Mynd með frétt: www.on.is
Aðrar umfjallanir
Ford mun kynna Mustang Mach e með sjálfstýringu sem hluta af tækniuppfærslum á Ford Co-Pilot360 kerfinu...
Þetta þótti manni nú gaman að lesa áður en lagt var af stað í skólann á þriðjudagsmorgnum, já svona upp úr 1990: Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík. Þvílíkar sögur!
Nissan skoðar nú með samstarfsaðilanum Renault hvort það borgi sig að búa til arftaka Nissan Micra. Talið er að sá yrði rafbíll.
Breski bílavefurinn Autocar er að fjalla um fimmtu kynslóð Range Rover, sem er væntanleg...