Fyndnar auglýsingar geta gefið tóninn í upphafi vikunnar og átt sinn þátt í að koma fólki kampakátu af stað út í umferðina svona á mánudagsmorgni. Sérstaklega ef þær auglýsa eitthvað sem hvorki er fáanlegt né mann vanhagar um.
Eitt besta dæmi um slíka auglýsingu, að mati undirritaðrar, er hér fyrir neðan og er frá árinu 2003. Rúmeninn Leo Burnett leikstýrði auglýsingunni, en í dag hafa fæstir nokkra einustu hugmynd um hvað í veröldinni var verið að auglýsa!
Bílaauglýsing sem auglýsir ekki bíla
Lesendur hafa ef til vill séð þessa auglýsingu, enda nokkuð gömul eða á svipuðum aldri og nýlegasti bíllinn í mínum flota. Þ.e. nýleg en samt eiginlega gömul. Já, 10 ára er auglýsingin sem flestir sem henni deila á YouTube halda að sé auglýsing fyrir bíl eða bíla.
„Láttu þér ekki leiðast“ var slagorð herferðarinnar „Anti-boredom“ sem rúmenska sjónvarpsstöðin Antena 1 ætlaði að fara í af krafti árið 2003 en herferðin bæði hófst og endaði með þessari auglýsingu.
Hvað misheppnuðu markaðsátaki í Rúmeníu 2003 líður þá kemur auglýsingin í veg fyrir að manni leiðist lengi eftir áhorfið. Hún er stutt og æðislega fyndin. Bílarnir í henni eru Dacia Solenza og Lada 1200.
Aðrar umfjallanir
Það hefur verið vitað að ný útgáfa að Porsche 911, að þessu sinni enn öflugri GT3 RS, væri á leiðinni...
Volkswagen Golf náði aftur sæti sem mest seldi bíll Evrópu í júlí eftir að bíllinn missti fyrsta sæti í tvo mánuði á undan til Renault Clio...
Margir muna eftir Toyota Crown, alvöru fólksbíl sem var vinsæll hér á landi á sínum tíma. Toyota hefur framleitt Crown fólksbílinn í Japan síðan 1955...
Árið 2021 voru 11.080 bílar afskráðir á Íslandi. Einhverjir fóru til úrvinnslu, sumir „týndust“ eða var stolið og þeir mögulega fluttir úr landi. Svo kemur það áhugaverða: 1.057 bílar voru fluttir úr landi. Það eru 88 bílar í mánuði, 22 stykki vikulega, já eða um 3 bílar á dag!