Víðs vegar um Bandaríkin hefur lögreglan tekið rafmagnsbíla af gerðinni Tesla Model Y í notkun. Ekki bara af því að gaman sé að góma skúrka og fúlmenni á Teslu heldur ráða umhverfissjónarmið og fjármunir líka einhverju.
Hugmynd um útlit bílanna sem lögreglan í Aspen vill fá. Mynd/Youtube
Lögreglan í Aspen vill 5 bíla
Í vikunni greindi blaðið The Aspen Times frá því að lögreglan í Aspen í Colorado falist nú eftir 311.000 dollurum (rúmar 40 milljónir ISK) frá borgarstjórn Aspen til kaupa á fimm Teslum Model Y.
Rafbílar myndu þá leysa af hólmi Ford Police Interceptor bensínjeppa (eru byggðir á Explorer) og fimm 12 ára gamla lögreglutvinnbíla af gerðinni Toyota Highlander.
Samkvæmt útreikningum lögreglunnar myndu þessi skipti spara þeim í Aspen gríðarlegar fjárhæðir en svo dæmi sé tekið kostar það lögregluna þar 44.000 dollara á ári að reka hvern Ford Police Interceptor. Svo ekki sé minnst á umhverfisþáttinn. Sem fyrr er undirrituð lítt gefin fyrir útreikninga og talnasúpur almennt og vísar á hlekkinn að ofan ef lesendur vilja sökkva sér í útreikningana.
Sérstök bílasaga lögreglunnar í Aspen
Það má greina af viðtali blaðsins við aðstöðaryfirlögreglustjórann að lögreglan í Aspen hafi fengið nóg af því að vera á „skrítnum“ lögreglubílum og vilji jafnvel vera töff svona til tilbreytingar.
Á áttunda áratug síðustu aldar varð löggan í Aspen „fræg“ fyrir sérstakan bílaflota en samkomulag var gert við sænska bílaframleiðandann Saab og frá ca. 1970 til 2004 ók lögreglan þar eingöngu um á Saab. Sem þótti sérstakt.
Aðrar umfjallanir
Er það vegna þess að mér er svo annt um umhverfið að ég get ekki hugsað mér að aka um á bíl sem puðrar út baneitruðum eldsneytisgufum...
Það eru nokkur atriði sem er eiginlega bara bannað að segja við bifvélavirkja. Eða það mælist öllu heldur ekki vel fyrir. Og sömuleiðis eru atriði sem gætu a) farið mjög í taugarnar á þeim eða b) glatt þá. Ekki það að bifvélavirkjar séu eitthvað oftar pirraðir en annað fólk. En förum aðeins yfir þetta.
Nokkrar sögur úr bílaheiminum - og hvers vegna þær eru sumar rangar...
Nýtt vörumerki BYD sem kallast Yangwang fylgir alþjóðlegum úrvalsmerkjum eftir og var að frumsýna U9 coupé-sportbíl og U8 jeppa