Það er ekki bara í Andrésblöðum sem keppt er í kappakstri aftur á bak. Það hefur nefnilega líka verið gert í „hinni“ veröldinni. Þ.e. í raunveruleikanum. Allt sem gat klikkað, klikkaði í svona kappakstri en útkoman var oftar en ekki óheyrilega fyndin sýning!
Hin óviðjafnanlega CVT skipting
Nú hefur undirrituð fjallað dálítið um óhefðbundnar akstursviðureignir og það sem er á jaðri þess að mega kallast sport (næstum jaðarsport) og þá má til dæmis nefna hina stórfurðulegu hjólhýsaklessubílakeppni.
„Bíll með svona sjálfskiptingu [Variomatic] gat komist jafn hratt aftur á bak og áfram! Fyrr á árum fór fram árleg kappaksturskeppni í Hollandi þar sem ekið var afturábak! DAF var settur í sinn eigin flokk vegna þessarar sjálfskiptingar enda hefðu hinir bílarnir ekki átt séns með hefðbundinn gírkassa eða sjálfskiptingu.“
Hollendingurinn bakkandi
Rúllum aftur í tímann til svona 1987, alla leið til Hollands. Landsins sem frægt er fyrir ýmislegt fleira en túlípana og hjólreiðar. Mekka „afturábakkappaksturs“, DAF og CVT skiptinga.
Upphaf kappakstursins aftur á bak má rekja til níunda áratugar síðustu aldar. Hollendingar kepptu fyrst í afturábakkappakstri á Dutch Zandvoort brautinni í Norður-Hollandi.
Hvaða Hollendingur átti hugmyndina, liggur ekki ljóst fyrir, alla vega ekki í fljótu bragði en það sem máli skiptir er að kappaksturinn varð mjög vinsæll. Áhorfendur sem fylgdust með á staðnum eða í gegnum sjónvarp skemmtu sér konunglega en annað eins „kaos“ á keppnisbraut hafði varla sést áður!
Allt fór í vitleysu í keppninni þar sem bakkað var til sigurs. Þetta reyndi verulega á bílstjóra og ekki tókst samhæfingin vel hjá öllum. Mynd/skjáskot úr meðfylgjandi myndbandi.
Sem fyrr segir gat DAF með CVT skiptingu ekið á jafn hratt afturábak og áfram. Við bestu aðstæður komst hann því upp í 130 km/klst og það er eflaust spes að fara afturábak á þeim hraða og reiða sig á spegla eða það að horfa yfir öxlina á sér með tilheyrandi ávísun á hálsríg.
Þetta er óheyrilega fyndið að mati þeirrar er hér leikur á lyklaborðið hljóðlausa. Það er greinilega ekki á allra færi að bakka, eins og við vissum reyndar fyrir, og ekki skánar það þegar hraðinn er orðinn eins mikill og í svona keppni.
Og hér, í myndbandinu fyrir neðan, fer bókstaflega allt í vitleysu. Keppnishaldarar höfðu komið fyrir hindrunum og stökkpöllum á brautinni og gert það sem áður var erfitt, tjah, næstum ómögulegt!
Aðrar umfjallanir
Í gær fór fram heimsfrumsýning á nýjum fjórhjóladrifnum og alrafmögnuðum Volkswagen ID.4 GTX. Umboðsaðili Volkswagen á Íslandi, Hekla...
Sala á tengitvinnbílum í Evrópu jókst um 145 prósent fyrstu sjö mánuðina sem góðir hvatar og ógnin við útblásturssektir fyrir bílaframleiðendur hjálpaði þeim að...
„Hvaða betri leið til að klára fyrri fyrir jólin en með akstri á nýjum Ford - bíl sem er mikilvægur ekki aðeins fyrir mest selda bílamerki Bretlands, heldur einnig...
Sért þú, lesandi góður, fæddur einhvern tíma á bilinu 1950 -2005 þá er hér hægt að sjá hvaða bíll var vinsælastur árið sem þú fæddist. Miðast þetta við bílamarkaðinn í Bandaríkjunum og er gaman að setja hlutina í sögulegt samhengi. Hvenær ert þú fæddur?