Já, það er auðvitað ekki eitthvert grill sem kemur á markað heldur nýr bíll og það enginn smáræðis bíll. Lexus kynnir endurhannað flaggskip: Lexus LX. Hann er býsna ólíkur þeim LX sem áður var en fyrst var bíll með því heiti kynntur árið 1996.
Þetta virðist stór jeppill (það er best að kalla það jeppil til að móðga engan) sem kynntur var í gær, 13. október í Moskvu, og hann er léttari en forveri hans. Heilum 200 kílóum léttari!
Hann er með 3.5 lítra twin-túrbó bensínvél, er 415 hestöfl og kemur á markað á næsta ári.
Auðvitað er hægt að segja rosalega margt um hann en í þetta skiptið fá myndir og myndbönd að tala sínu máli hvað útlit varðar. Ástæða: Það vekur athygli og þetta grill maður! Já, það fangar sannarlega athyglina.
Í gær spunnust víða á Twitter umræður um grillið og sitt sýnist hverjum. Samanburður við nýtt grill BMW kom upp víða og svo voru margir á því að þetta væri ekki „grill á bíl“ heldur „bíll á grilli“.
Gaman væri að vita hvað lesendum Bílabloggs finnst um grillið. Þeir sem vilja tjá sig um málið geta til dæmis gert það á Facebooksíðu Bílabloggs sem er einmitt hér.
Aðrar umfjallanir
Það er svo margt sem við hugsum aldrei um, og tökum sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að þegar það er rigning eða...
Þegar farið er um netheima má finna endalausar frásagnir um gamla bíla og hvernig þeir urðu til. Sumir bílar setja svip sinn á bílasöguna aðrir fóru langt umfram það til að...
Það er ekki á hverjum degi sem Luke Skywalker sér um lúguafgreiðsluna hjá Jack in the Box en þannig var það nú samt fyrir stuttu síðan. Leikarinn Mark Hamill var nefnilega rekinn úr þessu starfi fyrir margt löngu því hann átti það til að bregða á leik og fíflast í vinnunni.
Bílasýningin í Guangzhou 2022 stendur yfir í Kína núna og hófst frekar með látum með miklum eldi í einum af sýningarbásum framleiðenda...