Daginn sem Ken Block, atvinnurallari með meiru, hættir að aka sem óður þá er tvennt sem getur hafa gerst:
Fékk að kíkja í „leyniskúrinn“
Í fyrstu heimsókn kempunnar í höfuðstöðvar Audi fékk Block auðvitað að kíkja í „skúrinn“. Ekki bara venjulegan skúr heldur söguskúrinn sjálfan. Þar sem söguleg tryllitæki framleiðandans eru geymd og nánast falin eins og leynivopn.
Þar er að finna sturlaða rallýbíla og sjást þeir vel í meðfylgjandi myndbandi og geðshræringin við það að sjá þessa bíla kom hárunum til að rísa og augljóst að gæsahúðin hríslast um Block. Sjálf hefði ég sennilega farið að skæla en sem betur fer sést þessi töffari ekki skæla í myndbandinu.
Annað væri eins og að fara með nammisjúkan nammigrís í gotterísbúð til þess eins að horfa!
Og okkar maður fékk sko að prófa. Audi Sport quattro S1 E2, Sport Quattro RS 002, Audi V8 quattro DTM og framtíðarbíllinn Audi e-tron Vision Gran Turismo voru á meðal ökutækja sem hann prófaði.
Brosandi, en ekki hvað!
Honum leiddist þetta ekki baun! Þvert á móti! Enda hafði hann dreymt um að fá að prófa þessa bíla, árum saman.
Og síðast en ekki síst er dásamlegt að fylgjast með svipbrigðunum á andliti Ken Block, sem eðli máls samkvæmt, brosir mikið og fallega:
Aðrar umfjallanir
Það hljómar vel að „vinna bíl“ og tilhugsunin er góð. Flest okkar „vinna fyrir bíl“ enda hverfandi líkur á að hreppa hnossið í bílahappdrætti.
Hinn rafknúni Nissan Leaf hefur fengið uppfærslur fyrir árið 2021 með áherslu á aukið öryggi með nýju viðvörunarkerfi fyrir gangandi ökutæki...
Ekki vissi ég hvaðan á mig stóð veðrið þegar það nýjasta frá Subaru blasti við á tölvuskjánum áðan. Hundar út um allt í auglýsingum og ekkert fólk! Sannast sagna botna ég ekki í þessu en kannski er þetta hrikalega góð markaðssetning…
Nýtt umferðarmerki í Bengaluru á Indlandi kom sumum á óvart í vikunni en það er merkið hér fyrir ofan. Vísar það ekki til þess að keiluhöll sé í nágrenninu heldur merkir það að í sjóndaprir gætu verið gangandi í nágrenninu og því mikilvægt að ökumenn fari með gát. Hér eru fleiri sjaldgæf umerðarmerki.