Polestar 4 árgerð 2023 verður meðalstór coupé-sportjeppi á viðráðanlegu verði
Polestar mun setja nýja 3-sportjeppann á markað árið 2022 og og 5-bílinn byggðan á Precept árið 2024, með almennari “crossover”-bíl þar á milli.
Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar, hefur gefið frekari upplýsingar um hvernig rafbílafyrirtækið mun auka framboð sitt í kjölfar frétta um að það verði skráð á Nasdaq verðbréfamarkaðinn að verðmæti 20 milljarða dollara.
Polestar mun hleypa af stokkunum nýjum 5-bíl, byggðum á Precept (vinstri) árið 2024, á eftir 3 (til hægri) árið 2022 og 4 árið 2023.
Í skuggamyndinni sem fylgir þessari frétt má augljóslega sjá að þar eru 3 og 5, og 4 mun augljóslega koma á milli þeirra tveggja hvað varðar stærð en með aukinni áherslu á aðgengi fram yfir beinlínis lúxus og afköst.
Hins vegar hefur það „ekkert að gera“ með XC90 hvað varðar formið sjálft, því sá bíll mun hafa meiri loftfræðilega hönnun og „ótrúlega afstöðu og kraft“.
Þar af leiðandi mun 3 kosta meira en 75.000 evrur og verða settur á stall sem rafmagnsígildi flottari sportjeppa á borð við Porsche Cayenne, sagði Ingenlath. 4-bíllinn, hins vegar, verður verðlagður undir því verði til að höfða til breiðari markhóps.
4-bíllinn, mun í grundvallaratriðum vera jeppajafngildi 2-bílsins, lagði hann til.
Þaklínan með coupé áhrifum bendir til þess að það verði útgáfa Polestar af svipaðri stærð og Volvo C40, sem notar sama CMA grunn og 402 hestafla drifrás og 2-bíllinn. Skilgreiningin, eins og hjá öllum Polestar-bílum, verður einkennandi slétt og mínímalísk stefna fyrirtækisins í hönnun, sem styðst mikið við loftaflfræði og stendur fyrir að kraftmikinn karakter.
Aðrar umfjallanir
Haldi þessi þróun áfram gæti endað með því að Norðmenn breyti nafni höfuðborgarinnar í Tesló í stað Osló. Þannig er að árið 2021 var slegið met, því fleiri bílar hafa ekki selst á einu ári í Noregi síðan 1986. Tesla var mest seldi bíllinn 2021.
Víraður bíll, bíll sem hljómar eins og gæs og dádýr sem rústaði ökutæki að innan… Já, það virðist vera að jólahlaðborðið sé ívið snemma á ferðinni í ár en samt er þetta allt og meira til á seðli vikunnar af verkstæðisvitleysu!
SINDELFINGEN, Þýskalandi - Mercedes-Benz vonast til að endurheimta tæknilega forystu í flokki úrvals fólksbifreiða frá Tesla þegar þeir kynna næstu kynslóð S-Class í lok þessa árs...
Fer það betur með sjálfskiptinguna að skipta í hlutlausan á umferðarljósum en að leyfa bílnum að malla í „drive“ meðan beðið er eftir grænu ljósi? Það er sannarlega góð spurning en Bílablogg fékk þessa klassísku spurningu frá einum lesanda. Lítum nánar á málin!