Heimildarmyndin um Michael Schumacher hefur heldur betur fengið hörðustu jálka til að fella tár og hjólreiðakappa til að vilja leggja reiðhjólinu og setjast upp í formúlubíl.
Chris Harris (til vinstri) eins og hann kom okkur fyrir sjónir eftir akstur torfærubíls um Mýrina í Hellutorfærunni 2019. Mynd/Þórður Bragason
Rússíbanareið eftir öllum tilfinningaskalanum
Sem fyrr segir hafa fjölmargir fellt tár yfir myndinni, einkum síðustu 20 mínútum hennar. Corinna Schumacher, eiginkona Michaels Schumacher, opnar sig og greinir frá hvernig líf fjölskyldunnar breyttist á augabragði í skíðaferð fjölskyldunnar fyrir átta árum síðar. Þegar eiginmaðurinn, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, fékk alvarlegt höfuðhögg breyttist nefnilega allt og hefur fjölskyldan lítið sem ekkert tjáð sig um það fyrr en nú.
Ekki er ætlunin að ljóstra of miklu upp um myndina en þó má greina frá því að orð Micks Schumachers, sonar þeirra Corinnu og Michaels, virðast snerta flesta áhorfendur, ef eitthvað er að marka mörgþúsund ummæli fólks á Twitter.
Hinn tuttugu og tveggja ára gamli Mick keppir í Formúlu 1 og harmar að geta ekki rætt við föður sinn um akstursíþróttir. „I would give up everything just for that,“ sagði hann.
Drive To Survive á sterum
Það er nú alls ekki svo að þessi tæplega tveggja tíma mynd sé allsherjar ávísun á táraflóð! Alls ekki! Þeir sem forðast tilfinningaþrungnar stundir geta hreinlega sleppt síðustu 20 mínútum myndarinnar.
Jú, og sömuleiðis er dregin upp mynd af miklum selskapsmanni sem átti það til að syngja, nærstöddum til skelfingar, og hafði yndi af því að hrinda fullklæddum partígestum ofan í sundlaugina í garðinum sínum… Já, nú er best að segja ekki mikið fleira en leyfum þó einni skemmtiilegri færslu að fylgja þar sem vísað er í þættina frábæru um Formúlu 1, Drive To Survive:
Og svo eitt myndband í blálokin:
Aðrar umfjallanir
Það hefur eflaust verið ánægður og stoltur Elon Musk, stofnandi og eigandi Tesla, sem tísti á dögunum um brautarmet.
Porsche selur nú verulega fleiri jeppa en sportbíla, en 911 er áfram flaggskip vörumerkisins. Burtséð frá stöðu sinni sem ímynd sportbílanna, er „911“...
Aragrúi af aukabúnaði verður fáanlegur fyrir 2022 GMC Hummer rafbílinn. Áhugasamir geta hér séð brotabrot af búnaðinum sem kynntur verður á SEMA-sýningunni.
Volkswagen hefur gefið okkur sitt besta útlit til þessa á væntanlegum T7 Multivan. Það kemur í formi hönnunarlýsingar á undan frumsýningu...