Þriðja kynslóð vinsælasta sportjepplings allra tíma, Nissan Qashqai, er komin í sýningarsal BL við Sævarhöfða og verður hann kynntur formlega nk. laugardag 11. september milli kl. 12 og 16. Eins og áður er Qashqai í boði með vali um annað hvort framjóladrif eða fjórhjóladrif, en þar lýkur má segja samanburðinum við fráfarandi kynslóð enda hefur bíllinn tekið talsverðum breytingum frá fyrri kynslóð. Það á við hvort heldur sem er við útlit bílsins, farþegarými eða tæknibúnað eins og glögglega má sjá við skoðun og upplifun í akstri.

Stærri bíll

Augljósasta útlitsbreytingin við fyrstu skoðun er að framanverðu þar sem nýja V-Motion grillið og C-laga díóðuljósin kallast á og hrópa beinlínis á athygli. Þá er nýr Qashqai auk þess léttari en forverinn enda hurðar, frambretti og vélarhlíf úr áli í stað stáls svo nokkuð sé nefnt. Qashqai er einnig á nýjum og lengri undirvagni en áður auk þess sem lengra er á milli fram- og afturhjóla til að auka fótarými og þægindi farþega í aftursætum bílsins.

Aukin þægindi

Nú er Qashqai í fyrsta sinn boðinn með nuddi í framsætum, rafknúnum afturhlera með snertilausri opnun auk þess sem farangurrsrýmið er 50 lítrum stærra en í fráfarandi gerð. Einnig má nefna að afturhurðir opnast nú alveg upp á gátt (90°) til þægindarauka fyrir farþega til að setjast inn og stíga út úr bílnum.

image

Endurhannað farþegarými

Farþegarýmið hefur verið endurhannað með nýjum efnum, nýjum og vandaðri sætum og nýju mælaborði. Ofan við mælaborðið er val um 11“ framrúðuskjá með völdum upplýsingum. Við miðjustokkinn er nýr 9“ upplýsinga- og afþreyingarskjár með afar notendavænu viðmóti og samhæfingu við Andoid Auto og Apple CarPlay auk þess sem Google Street View er í boði og app í símann til að breyta stillingum bílsins úr fjarlægð.

Vélbúnaður

Hjá BL verður bíllinn boðinn með 156 hestafla 1,3 l DiG-T bensínvél með forþjöppu sem boðin er í tveimur útfærslum, annars vegar við sex gíra beinskiptingu og hins vegar 7 gíra Xtronic sjálfskiptingu og fjórhjóladrif. Báðar vélarútfærslur eru með mildri tvinntækni sem eykur eldsneytisnýtingu, snerpu úr kyrrstöðu og aðstoð upp brekkur til að lágmarka eyðslu og draga úr losun CO2 um 4g á ekinn km.

Þessi vél var fyrst kynnt 2018 en hefur nú verið þróuð áfram með nýjum tæknilausnum til enn bættra afkasta og skilvirkni.

image

Fjórar gerðir Qashqai

BL býður nýjan Nissan Qashqai í fjórum mismunandi búnaðarútfærslum; ríkulega búnu grunnútgáfunni Acenta, sem kostar frá 4.690.000, N-Connecta sem kostar frá 5.590.000, Tekna sem kostar frá 5.990.000 og loks Tekna+ sem kostar frá 6.290.000 og er hægt að kynna sér nánar mismunandi búnaðarútrfærslur á BL.is. Sem dæmi um öryggisstaðalbúnað Acenta sem ekki eru í fráfarandi gerð, má nefna sjálfvirka neyðarhemlun, sem skynjar bíla, gangandi vegfarendur og hjól, vegaskiltisnema, akreinavara og -stýringu, neyðarbremsuaðstoð, aðvörun á hliðarumferð, blindhornaviðvörun, skynvæddan hraðastilli, sjálfvirka skiptingu milli háa og lága ljósageislans og bakkskynjara með árekstrarvara.

Vinsælastur í sínum flokki

Meira en tíu þúsund eintök af nýjum Qashqai hafa nú þegar verið pantaðar í Evrópu frá því í febrúar þegar sala hófst, en alls hafa um fimm milljónir Qashqai verið afhentar frá 2007 þegar sala 1. kynslóðar hófst, þar af þrjár milljónir í Evrópu. Á Íslandi hafa á fjórða þúsund Qashqai verið nýskráðir frá 2007.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is