Rivian R1T kemur (kannski) í september
Ef nauðsynleg leyfi fást frá yfirvöldum í Ameríku verða fyrstu pallbílarnir afhentir núna í september.
Hann klífur brattar brekkur með stæl og þú getur vaðið yfir vatnsföll á R1T. Já, það er rétt þú getur keyrt yfir ár og vötn þangað til bíllinn flýtur upp, það er mælikvarðinn á hversu djúpt vatnið má vera sem ekið er yfir.
Rivian mun líka framleiða sportjeppann R1S en hann eins og pallbíllinn R1T er enginn slyddujeppi.
Þessir bílar henta í allar aðstæður og má segja að þeir séu fullkomnir fyrir íslenskar aðstæður. Það er hægt að skjótast út í búð á þeim og líka fara um öll fjöll og firnindi. Í skemmstu máli þú getur farið allt á þessum bílum sem þú kemst á óbreyttum jeppum og reyndar mun meira.
En skoðum aðeins betur þetta með að keyra rafbíl yfir vað. Það hljómar eins og glapræði við fyrstu sýn. En rafmótorarnir og rafgeymarnir í nútíma rafbílum eru algjörlega vatnsheldir og mega fara á kaf í vatn a.m.k. í smá stund.
En kíkjum á eftirfarandi myndband að lokum.
Aðrar umfjallanir
Árið 1965 brunuðu ýmsir bílar eftir prófunarbraut Ford í Dearborn. Það sem var sérkennilegt var að í þeim var ekki hefðbundið stýrishjól. Nei, til hvers að vera með svoleiðis?
Vestur í Bandaríkjunum er pallbílar „bílar fólksins“ í mun meiri mæli en hér á landi og í öðrum Evrópulöndum. Það kemur því ekki á óvart að bílaframleiðendur í Bandaríkjunum
Skoda mun enn og aftur bjóða upp á stationgerð í flokki minni bíla þegar fyrirtækið kynnir arftaka Fabia á næsta ári og heldur áfram með form yfirbyggingar sem...
Sem fyrr er vikuskammtur af verkstæðisvitleysu alveg nóg fyrir meðalmanneskju og hér er aldeilis úrval af ótrúlegum uppákomum! Hundur og dúfa, of mikið loft, of lítið loft, ekkert utan um loftið og svo mætti áfram telja.