Það eru nokkur atriði sem falla iðulega í grýttan jarðveg hjá þeim sem lagt hafa allt sitt í barna- og bílauppeldi:

Já, nú verður víst ekki hjá því komist öllu lengur að segja þetta bara umbúðalaust; hreint og beint, vafningalaust og allt það. Tilbúnir, lesendur góðir?

Játning hins einlæga og hjartahreina bíleiganda. Já og hógværa auðvitað!

Ég er BMW-eigandi. Það má ekki blanda mínum gamla eðalvagni inn í umræðuna á nokkurn hátt þegar gert er grín að mér. Það kemur einstaklega illa við mig ef eitthvað tengt bílnum er haft í flimtingum. Eða sett út á bílinn. Það er bannað! Höldum börnum og barnauppeldi utan við þessa umfjöllun þótt líkindin séu augljós.

image

Það er sérlega viðkvæmt ef skoðunarkarlar segja eitthvað um bílinn, eins og t.d. að hann sé farinn að reykja. Það er bara virkilega spælandi! Mynd/M.B.

Bílinn hef ég átt í að verða tvo áratugi og hefur hann alla tíð látið vel að minni stjórn. Þetta er frábær bíll, tryggur og trúr. Hann er vinur minn.

Já, hvert var ég komin?

Jú, þegar tryggingaráðgjafinn gerði mér „tilboð“ í bifreiðatryggingar reyndist iðgjaldið fyrir FORNBÍLINN [þetta er jú bíll aðeins yngri en ég sjálf: Engum blöðum um það að fletta að þetta er býsna gamalt - eldra en internetið, ostapoppið og barómeterinn] hærra en svo að ég kynni að telja öll núllin sem á eftir númerarununni komu.

„Það er þumalputtaregla þegar iðgjöld eru áætluð, að eigendur BMW eru líklegri en aðrir til að lenda í óhöppum. Tjah, eða öllu heldur: Valda óhöppum,“ sagði Tryggvi, Trausti, Tryggur eða hvað það nú var.

„Jahá! Þannig að áhættugjald á áhættu- og vandræðagjald ofan bætist svo ofan á svimandi hátt BMW-ökuníðings-iðgjalda-forarvilpu-fúafens-útreikningsklessuna ef viðkomandi grútarnefur er kvenkyns og jafnvel hörundsdökkur í þokkabót?“ spurði ég, og var í hreinskilni sagt bara nokkuð sigurviss eftir að hafa notað mjög mörg orð til að vega upp á móti mjög mörgum tölum, númerum og krónuígildum sem af munni Tryggs hrutu.

En nei, ég hefði getað sleppt því að þenja mig.

„Nei. Þetta hefur bara með bíltegundina að gera og það fólk sem kaupir hana. Tölfræðin talar sínu máli og þess vegna þurfið þið að borga hærri iðgjöld.“

image

Stórvarasamur bíll, svo ekki sé minnst á eigandann! Þessi hefur bara gert flugum mein síðan 1993 en ENGU öðru. Mynd/M.B.

Ég þakkaði fyrir mig og yfirgaf svæðið áður en minn forboðni munnlúður, BMW-soraskoltur, segði eitthvað ljótt og miður göfugt eins og eflaust má búast við af „svona“ fólki. Þessari „tegund“ fólks sem á bíl af þessari tilteknu gerð og allt það.

Nóg af dramatík! Þessari dramatík alla vega. Förum í næstu dramatík: Breta.

Bretar bauna á þýsk gæði og aðdáendur þeirra

Þetta er nú þegar orðin hin undarlegasta grein. Alveg hreint stórfurðuleg í alla staði og ekki kom hún til af góðu. Nei, ljót var hún, kveikjan. Altsvo kveikjan að skrifunum.

Já, þeir geta nú aldeilis þakkað, Bretarnir, fyrir að ekki var spurt um verstu matargerð… jæja, best að segja ekki meir!

Höfuðlagsfræðin afturgengin?

„Sú bölvaða vitleysa,“ segjum við í dag, útbelgd af skjalfestri og vottaðri réttlætiskennd um höfuðlagsfræðikenningar fyrri tíma. Höfuðlags-, eða kúpufræði (e. phrenology) var kenningartutla, skammlíf en þó of langlíf.

Kenning, um taugakerfið, sett fram af Þjóðverjanum Franz Joseph Gall seint á átjándu öld en inntak hennar var að lögun höfuðkúpu manna segði það sem segja þyrfti um lögun þess er innan í henni væri - heilans. Af þeirri lögun mætti ráða eitt og annað um eiginleika eigandans.

Í mjög einfaldaðri mynd af þessari kenningu Galls þá hefði til að mynda mátt sjá af höfuðlagi hversu vel gefinn einstaklingur gæti talist, hversu náskyldur eða fjarskyldur  hann væri öpum og hve líklegur hann væri til að feta glæpabrautina eður ei, í framtíðinni.

Vinsæl í Bretlandi

Það kemur kannski á óvart að kenning þessi, um tengsl lögunar höfuðkúpu og persónuleika manna, skyldi hafa átt miklu fylgi að fagna einmitt í Bretlandi.

Svo segir internetið. Jú, það hefur eflaust hentað nýlenduherrunum ágætlega að geta réttlætt hvernig þeir drottnuðu yfir lægra settu og „lakara“ mannfólki.

Rétt eins og að þeir sem eiga BMW eru pottþétt „lakari“ bílstjórar og líklegri til að skapa glundroða í umferðinni. Ætli ekki færi best á að senda þessa manntegund með sína bíltegund aftur til 18. aldar og skoða aðeins lögun höfuðkúpunnar „þeirra“?

Þarf nú vart að nefna það, við ykkur er skrifum undirritaðrar eruð kunnug, að hún skrifar hér sposk á svip og með eindæmum laus við hvers kyns meinfýsni.

Hvað sem því líður er alveg öskrandi ljóst að rétt eins og vinsældarskeið höfuðlags„fræða“ er sem betur fer löngu liðið þá er það jafn gapandi galið að tryggingafélög, til dæmis á Íslandi,  bæti nokkrum núllum aftan við iðgjaldið þegar BMW-eigendur eru rukkaðir.

Nei, það er ekkert sjálfsagt!

[Greinin birtist fyrst í júlí 2021]

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is