Hver man eftir grein 12?
Ég er enn einu sinni að tala um eftirfarandi grein í tryggingalögunum sem félög og samtök vildu fá breytt enda íþyngjandi fyrir kaupendur notaðra bíla. Við fjölluðum upphaflega um málið í þessari grein.
Hvað ætli margir hafi lent í vandræðum eða misst bíl vegna þessarar greinar í lögunum?
Er þetta ekki frekar dapurt að það skuli ekki vera hægt að breyta ósanngjörnum lögum á þetta löngum tíma? Ætti þetta ekki að vera í forgangi?
Hvað ætli margir hafi lent í vandræðum eða misst bíl vegna þessarar greinar í lögunum?
Hefur þú lent í þessu og hvernig fór það?
Aðrar umfjallanir
Árið 2021 voru 11.080 bílar afskráðir á Íslandi. Einhverjir fóru til úrvinnslu, sumir „týndust“ eða var stolið og þeir mögulega fluttir úr landi. Svo kemur það áhugaverða: 1.057 bílar voru fluttir úr landi. Það eru 88 bílar í mánuði, 22 stykki vikulega, já eða um 3 bílar á dag!
Það er spurning hvor er æðislegri: Sjötugi albanski leigubílstjórinn eða rúmlega milljón kílómetra leigubíllinn sem hann ekur! Hér er ríkulegur skammtur af sólskini, bíll sem hefur ferðast rúmlega 1.500.000 km. og fleira gott frá Albaníu.
Ford hefur fengið einkaleyfi á nýrri gerð vélar með túrbínu sem væri kannski ekki svo óvenjulegt ef ekki væri fyrir þá staðreynd að hún er vetnisknúin. Hvernig virkar þetta? Hér er ljómandi gott myndband þar sem þetta er útskýrt á mannamáli.
BMW CE 04 rafmagnsmótorhjól eða með notagildi sem líkist hugsanlega frekar „vespu“ er komin í endanlegan framleiðslubúning...