Fimm árum og 60 þúsund dollurum síðar
- Byggt á frásögn núverandi eiganda með söluyfirliti bílsins
1967 Mercedes-Benz 250SE
Upprunalegur eigandi þessa bíls lést fyrir um ári síðan [Ath. grein frá júní 2021]. Hann varð 91 árs. Sá sem keypti bílinn af honum er búinn að taka bílinn aðeins í gegn en hann er eins upprunalegur og bíll af þessari gerð getur orðið.
Eigandi bílsins var „stórgrosser“ í LA á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann notaði þennan bíl til og frá vinnu öll þau ár sem hann átti hann.
Hætti að aka
Að lokum var gamli maðurinn orðinn svo stirður að hann átti erfitt með að umgangast bílinn. Undirritaður er nú bara á sextugsaldri og á í erfiðleikum með að stíga út úr Tesla Model 3 í sýningarsalnum hjá þeim.
Tekinn í ræmur
Þegar svo var komið að hann gat ekki notað bílinn lengur lét sá gamli endurnýja bílinn, hann var allur tekinn í sundur og allt ryð sem fannst hreinsað burt og bíllinn var málaður aftur. Innréttingin er algjörlega upprunaleg. 2,5 lítra bensínvélin er sex strokka og gefur um 170 hestöfl.
Ætlun gamla mannsins var að barnabarn hans fengi bílinn eftir hans dag. Það gekk ekki upp einhverra hluta vegna.
„Ég er samt búinn að eyða í bílinn um fimm árum og 60 þúsund dollurum,“ segir núverandi eigandi sem keypti bílinn af gamla manninum.
Keyptur eftir mynd
„Ég keypti bílinn eftir mynd, fékk ekki að sjá hann með eigin augum áður. Það var bara ekki í boði.“ Teningunum var kastað og það urðu náttúrulega smá afleiðingar. Vélin þurfti lagfæringar við.
„Skoðið hálsinn á bensíntaknum upp í stútinn á bakvið númeraplötuna,“ allt tekið í nefið.
„Það var allt tekið í gegn, allt frá bensíntanki upp í innspýtingaspíssa – sumt tvisvar, annað þrisvar og þar á meðal hin tæknilega einstaka bensíndæla sem í þessum bíl er. Hún er sú þriðja sem ég hef keypt og sett í bílinn en nú virkar hún.“
Allt upprunalegt
Bílnum fylgja öll skjöl. Eigandahandbók, útvarpshandbók, skráningarskírteini á stáltegund og þjónustubók.
Númeraplötuljósin virka vel og eru þau undir, yfir og til hliðar við númeraplötuna. Þannig að bíllinn „fittar“ inn í bandarísku löggjöfina og þá evrópsku hvað númeraplötulýsingu varðar.
Vélin eins og ný
„Ég ók bílnum hingað uppeftir (Santa Barbara) á um 130 km hraða á um það bil 4300 rpm og vélin hummaði bara eins og spakur malandi köttur,“ segir núverandi eigandi.
Búið er að taka innréttinguna vel í gegn, þrífa, bóna og laga króm af Mercedes spesíalista sem sérhæfir sig í slíkri vinnu og veit flest um Mercedes.
Verðmiðinn er 69.500 dollarar. Til sölu hjá Hemmings.
Aðrar umfjallanir
Er hægt að aka eftir leiðsögukerfi sem ekki er tengt staðsetningarbúnaði? Hér er slíkt kerfi frá áttunda áratugnum skoðað. Mjög áhugavert og tjah, mögnuð hugmynd?
Hvað er betra eftir erfiðan vinnudag en góð hávaðakeppni? Manni dettur eitt og annað betra í hug en hvað um það. Hér eigast við tveir náungar, hvor á sínum VW Golf 6 GTI og flugeldasýningin hefst. Með tilheyrandi hávaða.
Hver man ekki eftir svona upphrópunum: Þessi er lódaður, gullmolinn sem á sér engan líka, einn með öllu, rafmagn í öllu og grjótgrind...
Uppúr 1950 þegar VW fór að flytja Rúgbrauðið yfir til Bandaríkjanna fór það náttla ekki framhjá Kananum. Um miðjan fimmta áratuginn hófu bandarísku bílaframleiðendurnir Ford...