Sex mánaða rafmögnuð upplifun
- Hvernig er að skipta yfir í rafbíl?
Næstu sex mánuðina munum við hjá Bílablogg hafa splunkunýjan VW ID.4 í okkar höndum. Í samstarfi við Heklu munum við gera nokkra skemmtilega og upplýsandi myndbands þætti sem birtir verða á vefnum okkar Bílablogg.is, Facebook og Youtube rásinni okkar.
Ein af fyrstu ferðum á hraðhleðslustöð.
Efni þáttanna verður fjölbreytt. Við ætlum að taka á flestum þeim þáttum er lúta að því að snúa frá bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti yfir í rafmagnsbíl.
Splunkunýr ID.4 sem Bílablogg.is mun aka í sex mánuði í samstarfi við Heklu, og lýsa á meðan þeirri upplifun að eignast og reka rafmagnsbíl.
Margs að spyrja
Að sjálfsögðu vakna margar og misjafnar spurningar við skoðun á kaupum á rafmagnsbíl. Hver er drægnin, hvað er ég lengi að hlaða, hvernig á ég að nota bílinn, eru vegakerfið tilbúið fyrir alla tæknina og hvernig eru tryggingamálin.
Hleðsluviðmót VW ID.4.
Öllum þessum spurningum leitum við svara við hjá þeim sem þekkja best til í bransanum.
Fylgist með næstu sex mánuði á Bílablogg.is – þetta verður skemmtilegur pakki.
ID hleðslustöð frá Heklu.
Fyrsti þáttur í næstu viku
Við sendum út fyrsta þáttinn í seríunni í næstu viku. Þar verða meðal annars viðtöl við Ísorku, Orku náttúrunnar og Bergraf sem setur upp tengir hleðslustöðvar.
Aðrar umfjallanir
Við erum þessa dagana að fjalla um fræga bíla í sjónvarpsþáttum. Að þessu sinni er það ekki bíll einkaspæjara ... þetta er bíll aðstoðarmanns einkaspæjara, þeim besta í heimi í rauninni að dómi margra, spæjarans sem kom frá Belgíu með stærsta heilann í morðgátubransanum: Hercule Poirot.
Nýr Subaru Impreza verður frumsýndur fimmtudaginn 17. nóvember
Þið verðið að dæma fyrir ykkur sjálf en mér finnst það ofsasniðugt!
Þegar ökumenn halda að enginn sjái til gera þeir eitt og annað sem aldrei ætti að komast í hámæli. Þökk sé bandarískri rannsókn getum við vísað í aðra og bent á þátttakendur – þó við vitum auðvitað að þetta er okkur ekki endilega framandi.