Ný Skoda Fabia verður stærri, og bætir við háþróaðri tækni
- Fjórða kynslóð bílins er nú smíðuð á MQB-A0 grunni VW Group
Skoda hefur aukið stærð nýja Skoda Fabia og bætt við öryggis- og þægindabúnaði en hann mun ekki bjóða blendingaútgáfu (hybrid) til að halda niðri kostnaði.
Fabia fær ferska hönnun með formuðum línum á vélarhlífinni og á hliðunum og nýjum ljósum með LED tækni.
Fjórða kynslóð Fabia færist í fyrsta sinn yfir á MQB-A0 grunn móðurfyrirtækisins Volkswagen, sem gerir bílnum kleift að vera 110 mm lengri en forverinn, eða 4108 mm og skapa þannig farþegunum viðbótarpláss.
Aukin stærð gefur Fabia „meira pláss en í bílum samkeppnisaðila okkar“, sagði Thomas Schaefer, forstjóri Skoda.
Lengra hjólhaf, 2564 mm, þýðir að nýi Skoda Fabia er lengri en Skoda Octavia var árið 1996.
Ekki rafmagn og aðeins bensínvélar
Skoda hefur valið að rafvæða ekki Fabia og mun í staðinn aðeins bjóða bensínvélar. Ástæðan sem gefin var fyrir því að bjóða ekki einu sinni mildblendingaútgáfu var að halda verðinu niðri.
„Sem vörumerki sem er þekkt fyrir gildi fyrir peningana, þegar þú rafvæðir, byrjarðu að eyðileggja það vegna aukins kostnaðar“ sagði talsmaður Skoda.
Fabia mun bjóða upp á þriggja strokka bensínvél án túrbó með tveimur aflstigum og þriggja strokka túrbóvél með tveimur aflstigum.
Stærri 1,5 lítra fjögurra strokka turbóbensínvél er fáanleg með 150 hestöflum og DSG gírkassa sem staðalbúnað.
Lægsta losun Fabia hefur CO2 útblástur upp á 113 grömm á km, sagði Skoda.
Tækni sem nú er boðið upp á í Fabia er svipuð og hjá stærri Octavia og inniheldur nýjan frístandandi snertiskjá í aðal mælaborðinu allt að 9,2 tommur að stærð. Tveir smærri skjáir eru í boði í bílum í lægra stigi búnaðar. Admundsen upplýsinga- og afþreyingarkerfið inniheldur látbragðsstýringu. 10,25 tommu „virtual cockpit“ skjár fyrir framan bílstjórann færir VW Group tæknina inn í Fabia í fyrsta skipti.
Valfrjáls aðstoðartækni við akstur felur í sér í fyrsta skipti Travel Assist Skoda, sem tengir akreinatækni við aðlögunarhraðastýringu og aðrar aðgerðir, svo sem skiltauppgötvun, til að stjórna hraða sjálfkrafa.
Aðrir eiginleikar eru valkostir á hitun stýris og upphitun á framrúðu.
Hönnun Fabia er uppfærsla á núverandi gerð. Bíllinn hefur fengið meira aðlaðandi hönnun með smáatriðum eins og mjó LED framljós og afturljós sem teygja sig yfir á afturhlerann.
„Með nýju hlutföllunum lítur grunngerðin okkar miklu kraftmeiri og „fullorðnari“, sagði hann
Bíllinn er sá með bestu eiginleika varðandi loftmótsstöðu í sínum flokki, sagði Skoda, þökk sé tækjum eins og sérstökum plastskreytingum og virkum kælilokum í neðra grillinu að framan sem lokast þegar þess er ekki er þörf.
(frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Morgunblaðinu 25. október 1949: „Í gærdag var byrjað að undirbúa uppsetningu hinna mjög svo langþráðu umferðarljósa. Byrjað var á að brjóta upp göturnar og gangstéttarhellum lyft á þeim gatnamótum sem ljósin eiga að koma upp við.“
BMW mun byggja öll ökutæki sem seld eru af undir vörumerki bílaframleiðandans á nýjum grunni sem er fókuseraður á rafknúin ökutæki verður kynntur árið 2025...
Tómatsósa, þingmenn, grínistar, RC-kóla og bílleysi er á meðal þess sem við sögu kemur í þriðju og síðustu greininni um starf leigubílstjórans! Gjörið svo vel!
Piltur nokkur gerði sér lítið fyrir og skrapp á fjölskyldubílnum í skólann. Systkini hans fengu far. Verst að guttinn er bara 10 ára gamall og þó að hann hafi ekki klesst á eitt eða neitt þá er fullorðna fólkið alveg brjálað núna.