Nafntogaðir en óakandi og óferjandi

Oft hef ég hugleitt að sá rithöfundur sem ég dái mest tók aldrei bílpróf. Það er meistari Þórbergur Þórðarsson (sem ég hélt stóran hluta bernskunnar að hefði verið afi minn, en það er nú önnur saga sem hefur fátt með bíla að gera).

Nýtti hann sér almenningssamgöngur þegar ferðir utan göngufæris voru á dagskrá.

image

Þórbergur átti sennilega ekki svona nýmóðins skó en hann kaus að fara ferða sinna á tveimur jafnfljótum.

Að eiga draumabíla en aka þeim ekki

Þórbergur var aldrei ríkur, þ.e. veraldlegt ríkidæmi kaus hann ekki og einhvern veginn efast maður um að hann hefði sólundað fé í ökutæki, hefði hann átt þess kost. Hann heimsótti kommúnistalöndin Kína og Sovétríkin og ekki þurfti hann ökuréttindi til þess.

Samtímamaður Þórbergs var annar snjall rithöfundur, sjálft Nóbelsskáldið, Halldór Kiljan Laxness.

Sá hafði verulega gaman af bílum og keypti sér splunkunýjan Jaguar árið 1968, eins og fjallað hefur verið um í annarri grein hér á Bílabloggi.

image

Það er kannski öllum fyrir bestu að höfundurinn J.K. Rowling skuli ekki aka sjálf.

Hún á víst fúlgur fjár og er á þeim stað í tilverunni að geta gert um það bil allt sem henni dettur í hug og keypt það sem hugurinn girnist.

Segja kunnugir að hún eigi sérlega fínar drossíur en til að auka líkurnar á að hún lifi ökuferðirnar af er hún með bílstjóra.

Kennir hún lélegri rýmisgreind og sambandsleysi við raunveruleikann um og kýs (þökkum fyrir það) að vera frekar farþegi en bílstjóri þegar hún ferðast um í Rolls Royce eða Range Rover eðalvögnum sínum.

J.LO hefur ekki ekið í 25 ár

Það gengur ekki að fjalla bara um rithöfunda og því þarf undirrituð að treysta á veraldarvefinn til að hafa uppi á öðrum nafntoguðum sem ekki aka bílum. Samkvæmt alnetinu fékk leik- og söngkonan Jennifer Lopez, gasalega flottan Porsche 911 Carrera GTS Cabriolet í afmælisgjöf frá unnusta sínum. Það eru tæp tvö ár síðan.

image

Porsche 911 Carrera GTS: Ekki amaleg afmælisgjöf það!

Af ýmsum ástæðum hefur hún ekki viljað aka bíl og þegar hún ók hring á afmæliskagganum játaði hún að 25 ár væru síðan hún ók bíl síðast!

Fleiri söngfuglar

Mariah Carey er víst ein þeirra sem á helling af glæsikerrum en ekur þeim ekki sjálf. Sagt er að hún og eiginmaður hennar „gefi hvort öðru gjarnan bíla“ eins og maður eflaust gerir í auðheimum. Nema hvað að Carey ekur bílunum ekki sjálf, eins og áður kom fram.

image

Kannski er bara nokkuð gaman að vera bílstjórinn hennar Carey.

Bílstjórinn hennar fær því að aka bílum á borð við Rolls Royce Phantom Coupe, Maserati Quattroporte, Maybach 62 Luxury Sedan, BLEIKUM Porsche Cayenne og svartmöttum Range Rover. Veit ekki alveg með þann bleika en hitt hljómar þokkalega.

Sorglegt en satt

Þetta átti að vera skemmtileg umfjöllun en hér er undantekningin. Stúlka nokkur sem mjög gjarnan vildi aka eigin bílum, má það ekki því hún gerði allnokkur axarsköft á árum áður og er fyrir vikið í ævilöngu „akstursbanni“.

image

Britney Spears er í algjöru banni og er með bílstjóra í vinnu.

Þetta er poppstirnið Britney Spears sem hefur eflaust átt erfitt með að fóta sig í lífinu vegna fíknar og annarra leiðinda. Oft er bara best að þeir sem illa kunna að fóta sig séu ekkert að aka bifreiðum í ofanálag.

Í rúman áratug hefur stelpan því ferðast um í bílunum sínum (Jeep, Range Rover, Mini, Benz) með einkabílstjóra sem sér um aksturinn.

Að aka með papparazzi á hælunum

Nú skal viðurkennt að undirrituð hefur ákaflega litla, ef nokkra, þekkingu á fræga fólkinu. Hins vegar er bæði áhuginn og örlítil þekking til staðar þegar kemur að ökutækjum og þannig bjargast umfjöllunin vonandi fyrir horn!

Ætli það hafi ekki verið í einhverju átaki Umferðarráðs þar sem sagt var og skrifað: „Á eftir bolta kemur barn“.

Það má kannski heimfæra þetta upp á Ameríku fræga fólksins og segja: „Á eftir stórstjörnu kemur paparazzi“ [paparazzi er ljósmyndari, oftast lausaljósmyndari, sem eltir frægt fólk og reynir að ná af því myndum].

image

Fæst okkar myndu vilja hafa þessa á eftir sér daginn út og inn.

Í það minnsta hafa nokkrar stjörnur, eins og t.d. Christina Aguilera, ákveðið að láta áhættuakstur, þar sem þær eru á flótta undan papparözzum, alfarið eiga sig. Sem sagt; láta akstur eiga sig yfirhöfuð. Bílstjórar stjarnanna sjá um að koma þeim á milli staða.

Eru þetta bara konur?

Fyrir utan Þórberg Þórðarson hér í upphafi hafa engir karlar verið nefndir til sögunnar. Kannski láta þeir ekki hafa svona lagað eftir sér - hver veit.

Jæja, hvað um það! Ég rambaði á nokkrar karlstjörnur (karlstirni) í leit minni á hinum óendanlega veraldarvef.

Kom mér hjá svartholum og þurfti að lokum að sætta mig við þá staðreynd að ég þekki varla nokkurn kjaft af þeim gaukum sem leitin skilaði!

Noel Gallagher, hinn tónlistarbróðirinn með svaðalegustu samvöxnu augnabrúnir sem um getur, hefur talað fjálglega um að eiga fimm kagga. Hins vegar hefur hann ekkert minnst á að aka þeim sjálfur og virðist það ekki vera á dagskrá.

Sumir eru bara ánægðir þarna aftur í og kæra sig kollótta um bílstjórahlutverkið. Kannski þyrfti hann að fórna hinum miklu brúnum til sjá veginn en það er nú helst til stór fórn!

image

Stundum byrgja brúnir mönnum sýn.

Auðvitað er þetta ofar/neðar mínum skilningi; að eiga bíla en aka þeim ekki. Rétt eins og að eiga hin fullkomnu gleraugu en biðja nágrannann að nota þau. Tjah, eða að kaupa kruðeríshnallþóru aldarinnar og biðja einhvern annan að borða hana fyrir sig…

Maður hvorki getur né þarf að skilja alla hluti!

Hafðir þú gaman af þessari grein? Þá gætir þú haft áhuga á:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is