Uppfærður Toyota Camry kemur vorið 2021
Toyota Camry uppfærður með nokkrum útlits- og tæknibótum - þar á meðal er nýr níu tommu snertiskjár
Toyota hefur gefið Camry-fólksbílnum minniháttar útlits- og búnaðaruppfærslu fyrir árgerð 2021 þegar bíllin kemur í sölu snemma á næsta ári.
Útlitsbreytingar á uppfærða Toyota Camry eru takmarkaðar við nýjan stuðara að framan með nokkrum auka loftopum, endurmótað grill og nýrri hönnun á álfelgum í 17 eða 18 tommu stærð.
Nýr 9 tommu skjár
Stærsta breytingin á innréttingum Camry er hins vegar nýr níu tommu skjár fyrir upplýsingakerfi, festur ofan á mælaborðið. Hann kemur í staðinn fyrir sjö tommu skjá gamla bílsins og bætir við stuðningi við Apple CarPlay og Android Auto - nokkuð sem þann gamla vantaði.
Kaupendur fá einnig aukinn öryggisbúnað, svo sem akreinahjálp, neyðarstýringaraðstoð og greindarstýrðan aðlagaðan hraðastilli, sem þekkir breytingar á hraðatakmörkun og aðlagar sjálfkrafa hraða bílsins við aðra umferð.
Toyota Camry: vél og drifbúnaður
Toyota Camry er aðeins fáanlegur með hefðbundinni tvinnaflrás. Kerfið samanstendur af 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél, rafmótor og rafgeymapakka.
Samanlagt afl sem er 215 hestöfl og 221 Nm tog dugar í hröðun frá 0–100 km/klst á tímanum 8,3 sekúndur og hámarkshraða 178 km/klst. Það sem er meira um vert, blendingsaflrás Camry skilar WLTP eldsneytiseyðslutölum á bilinu 5,6-5,3 litra á 100 km, en framleiðir aðeins milli 120 og 127 g / km af CO2.
Toyota Camry: tækni og búnaður
Samkvæmt frétt á AutoExpress er endanlega breska forskriftin fyrir endurskoðaðan Camry ekki ennþá staðfest en Toyota hefur sagt að ólíklegt sé að þær breytist mikið miðað við núverandi gerð. Þannig að bíllinn mun enn koma í grunngerð sem staðalbúnaður með 17 tommu álfelgum, hituðum og rafstillanlegum framsætum, skynjurum að framan og aftan til að aðstoða við að leggja í stæði, LED framljósum og tvískiptri stillingu á miðstöð.
(frétt á Auto Express – myndir Toyota)
Aðrar umfjallanir
VW var að senda frá sér nýja mynd til að kveikja áhugann á hinum nýja Golf R sem mun verða frumsýndur þann 4. nóvember næstkomandi, ef allt...
Toyota Corolla, einn vinsælasti bíll heims, hefur fengið endurnýjun á miðjum aldri núverandi kynslóðar....
Skoda hefur flýtt kynningu á næstu þremur rafbílum sínum um fjögur ár, frá 2030 til 2026...
Við sögðum frá því í byrjun mánaðarins að Hyundai myndi frumsýna nýjan Tucson fljótlega. Núna er hann kominn, nýi Hyundai Tucson...