Rolls-Royce ætlar í rafmagnið á þessum áratug
Rafbíll gæti komið í stað Wraith coupe og Dawn blæjubílsins (á myndinni), en báðir eru að ljúka líftíma sínum.
LONDON - Rolls-Royce er að þróa sjálfstæðan rafbíl til að undirbúa það að eiga bíl þegar lokun nokkurra miðbæja fyrir bílum með brennsluvélum kemur til framkvæmda.
Að minnsta kosti 20 stórborgir á heimsvísu hafa sagst ætla að banna dísil- eða bensínknúna bíla frá miðbæjarkjörnum sínum fyrir árið 2030.
Rolls-Royce mun bjóða fyrsta fulla rafknúna Rolls-Royce „innan þessa áratugar,“ sagði Torsten Müller-Ötvös forstjóri við Automotive News Europe í símaviðtali.
Rolls-Royce einbeitir sér að rafknúnum bílum og mun ekki selja tengitvinnbíla, sagði hann.
Viðskiptavinir Roll-Royce vilja rafmagn, sem „passar fullkomlega“ við vörumerkið, sagði Müller-Ötvös. „Það er hljóðlaust og með nægt tog og það er ástæðan fyrir því að fara beint úr brennslu í rafvæðingu“, sagði hann.
Fyrsti bíll Rolls-Royce er nú í þróun og verður byggður á sama álrýmisgrunni og núverandi lína bílaframleiðandans.
Rafbíll gæti komið í stað Wraith coupe og Dawn blæjubílsins, sem báðir eru að ljúka líftíma sínum, yfirmenn Rolls-Royce gáfu þetta í skyn við nýlegan viðburð frumsýningar á nýja Ghost fólksbílnum. Rolls-Royce staðfesti það ekki opinberlega.
„Það er engin eftirspurn frá viðskiptavinum en við þurfum að vera í aðstöðu til að selja þeim bíl ef löggjöf bannar þeim að aka bíl með brennsluvél inn í miðbæ borgarinnar“, sagði talsmaðurinn.
Rolls-Royce sýndi rafútgáfu af fyrri Phantom fólksbílnum, sem kallast 102EX, á bílasýningunni í Genf 2011. Þróunarvinna við rafbíl hefur þó legið niðri síðan, meðal annars vegna takmarkana tækninnar.
102EX var eitt fyrsti rafmagnshugmyndabíllinn sem var með þráðlausa spanhleðslu en Rolls-Royce hefur síðan orðið frekar afhuga hugmyndinni og vitnað til óhagkvæmni hennar og hugsanlegrar hættu.
Þess í stað vinnur vörumerkið með öðru fyrirtæki við að útbúa handlegg á þjarka (róbot) sem getur hlaðið bílinn sjálfkrafa.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Flutningaskipið sem kviknaði í í síðustu viku með um 4.000 bíla frá Volkswagen Group gæti kostað bílaframleiðandann að minnsta kosti 155 milljónir Bandaríkjadollara...
Nemendur frá „Skoda Vocational Academy“ eða hönnunarskóla fyrirtækisins eru að þróa opna „spider“-útgáfu af Scala...
Í dag ætlum við að segja frá nýjum rafbíl frá Frakklandi sem byggir á gamalli og góðri hönnun, og því þurfum við að byrja á því að „hoppa“ ...
Bílaumboðið BL á sér langa sögu í bílaheiminum á Íslandi. Grunnur fyrirtækisins er að árið 1954 Í kjölfar viðskiptasamnings við Sovétríkin var...