'Slavia' - verkefni nemenda í hönnunarskóla Skoda er tilbúið
- Nýjasta verkefnið frá nemendum við Skoda akademíuna fólst í því að taka þakið af Scala til að minnast eins af gömlu bílunum í kappakstrinum
Við sögðum frá því í máli og myndum hér á vefnum á dögunum að nemendur í hönnunarskóla Skoda voru að leggja drög að því að smíða flottan sportbíl – til að minnast eins af gömlu kappakstursbílunum frá Skoda.
Það er greinilega fáránlegt gaman að vera námsmaður í Skoda-hönnunarskólanum. Í fyrra bjuggu lærlingarnir til „Mountiaq“ sem byggður er á grunni Kodiaq og sem hefur nýlega verið fylgt eftir með þessum sportara „Slavia“.
Slavia er innblásin af Skoda 1100 OHC, sem var í kappakstrinum á sjötta áratugnum og notar Scala hatchback, eða hlaðbak sem upphafspunkt. Þakið hefur verið tekið af og skipt út fyrir tvær upphækkanir, og afturhurðirnar hafa líka verið fjarlægðar.
Það eru fleiri hlutir til staðar úr öðrum áttum, í formi 320 watta hljóðkerfis og öflugs 2250 watta bassabox. Þegar litið er inn í farþegarýmið blasir við nýtt stýri og leðurklædd sportsæti.
Eins skemmtilegt og það gæti hafa verið að stinga öflugri 2,0 lítra „EA888“ fjögurra strokka túrbó línuvél undir vélarhlífina, heldur Slavia litlu 1,5 lítra vélinni sem til er í venjulegu Scala. Hún er 148 hestöfl og sendir aflið til framhjólanna með „DSG“ sjálfskiptingu með tvöfaldri kúplingu.
Aðrar umfjallanir
Það er ágætt að heyra hvað þeim sem lifa og hrærast í heimi bíla finnst best og verst af því sem þeir skoða. Mat Watson hjá CarWOW er virkilega mikill bílakarl og hér er samantekt hans á því flottasta og ljótasta á markaði 2022.
Maður hættir ekki að leika sér af því maður verður gamall. Maður verður gamall því að maður hættir að leika sér. Er það ekki? Bob Helms heitir náungi sem er mikill ökuþór í Ameríku. Hann er ekki hættur að leika sér enda bara 77 ára og ekki ástæða til að hætta.
Fyrir 114 árum birtist fyrsta Ford auglýsingin. Síðan þá hafa þær birst margar og alls ekki alltaf í hefðbundnu auglýsingaformi. Oft hefur verið um einhvers konar gjörning að ræða og má þar til dæmis nefna skemmtilegt uppátæki sem hafði með kveikt og slökkt ljós að gera.
Þetta er frekar skondinn bíltúr. Mat Wilson sem er maðurinn sem stendur að Carwow fær móður sína í bíltúr á hennar bíl til að sjá hvort hún vilji selja bílinn sem er Tesla...