Myndir frá afhendingu Stálstýrisins
Miðvikudaginn 16. október komu saman helstu aðilar frá bílaumboðum landsins til að taka á móti verðlaunum í sambandi við keppnina Bíll Ársins. Afhending verðlaunanna fór fram í sal Blaðamannafélagsins í Síðumúla og voru léttar veitingar í boði.
Eftir stutta ræðu frá Finni Thorlacius fór afhending verðlaunanna fram. Hér á eftir eru nokkrar myndir sem við hjá Bílablogg tókum við tækifærið.
Finnur Thorlacius þakkaði bílaumboðunum fyrir þeirra samstarf þegar kom að valinu.
Kristinn G. Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Toyota á Íslandi, tekur hér við fyrsta af þrem viðurkenningaskjöldum fyrir hönd síns umboðs.
Jónas Kári Eiríksson, Vörustjóri Mercedes-Benz, tekur hér við skildi fyrir annað sætið í flokki stærri fjölskyldubíla sem Mercedes Benz B-Class hlaut.
Benný Ósk Harðardóttir tekur á móti verðlaunum fyrir hönd Brimborgar um annað sætið í flokki jepplinga.
Karl S. Óskarsson (t.h.), sölustjóri Jaguar Land Rover, Bjarni Þ. Sigurðsson (m.), aðstoðarframkvæmdarstjóri Jaguar Land Rover á Íslandi, og Finnur Thorlacius (v.) blaðamaður við afhendinguna á stálstýrinu.
Jónas Kári Eiríksson (t.v.), Vörustjóri Mercedes-Benz, Karl S. Óskarsson (m.), sölustjóri Jaguar Land Rover og Árni Þorsteinsson, vörumerkjastjóri Audi halda á viðurkenningum fyrir efstu þrjú sætin í valinu um bíl ársins 2020, en allir þeir bílar voru í flokki rafjeppa.
Aðrar umfjallanir
Jú, það er rétt. Þetta er hann. Smart #1 meira að segja. Það er nafnið á nýjum rafjeppa Smart sem ætlað er að koma fyrirtækinu aftur á kortið.
Jon Winding-Sørensen hjá BilNorge-vefsíðunni kemur oft með frásagnir af „öðru vísi“ bílum, og í dag er það um sérsmíðaða útgáfu...
Volvo segir að 30% þeirra sem kaupa V60 / V60 Cross Country haldi sig áfram við þessa gerð.