Jim Ratcliffe ætlar að smíða “arftaka Land Rover Defender” í Wales

Auðmaðurinn Jim Radcliffe, ríkasti maður Bretlands og sem keypt hefur fjölmargar jarðir á Norðausturlandi til að vernda íslenska laxastofninn er komin á fullt í bílaiðnaðinum og hyggst framleiða „alvöru arftaka“ Land Rover Defender-jeppans. Bíllinn sem kallast Grenadier eða „fótgönguliðinn“ verður settur saman í verksmiðjum Ineos í Bridgend í Wales, nálægt Ford vélarverksmiðju sem búið er að tilkynna að verði lokað 2020. Radcliffe mun stefna að því að fá iðnaðarmenn frá Ford-verksmiðjunni til starfa við smíði jeppans.

image

Auðmaðurinn Jim Ratcliffe, umfangsmikill jarðaeigandi hér á landi, hyggst framleiða raunverulega arftaka Land Rover Defender í verksmiðjum í Wales.

Ríkasti maður Bretlands mun þannig smíða keppinaut Land Rover Defender jeppans í Bretlandi og skapa hundruð starfa í einu þegar bílaiðnaðurinn er í samdrætti vegna minnkandi sölu og óvissu um Brexit.

Samsetningin fer fram í Wales, en smíði grindar og yfirbyggingar í Portúgal, að sögn fyrirtækisins. Bifreiðin mun fara í sölu árið 2021.

Tilkynnt viku eftir frumsýningu á nýjum Defender

Jim Ratcliffe, sem er hreinskilinn talsmaður Brexit og margmilljarða auðmaður, tilkynnir um þetta varla viku eftir að Jaguar Land Rover frumsýndi endurgerða útgáfu af hinum 70 ára gamla Defender í Frankfurt.

image

Enginn veit hvernig þessi nýi „arftaki Defender“, sem mun heita Grenadier eða „fótgönguliðinn“ muni líta út en hér er auglýsingaspjald frá Ineos, fyrirtæki Ratcliffe.

„Þegar við verðum komnir á það stig að framleiða mun allt sem hefur gerst hafa gerst og hindrunum sem ekki eru tollamál hafa verið yfirstignar eða við munum hafa unnið okkur í kringum þær,“ sagði Tom Crotty, framkvæmdastjóri fyrirtækjamála hjá Ineos.

Ineos, sem er að grunni olíufyrirtæki, er að veðja á að Grenadier muni höfða til kjarnakaupenda Defender, sem líta á nýjan Defender sem kynntur var á bílasýningunni í Frankfurt í þessum mánuði sem óhagkvæman og dýran.

Ratcliffe vildi halda í gamla Defender

Ratcliffe hugsaði nýja bílinn eftir að það mistókst að halda upprunalega Defender á markaðnum þegar strangari reglur um losun urðu til þess að JLR hætti framleiðslu árið 2016. Ineos Automotive sagðist í mars hafa valið BMW til að framleiða bensín og dísilvélar fyrir nýja bílinn.

image

Þessi nýi arftaki gamla Defender-jeppans verður settur saman í þessum verksmiðum í Wales, grind og yfirbygging kemur frá Portúgal og vélar frá BMW.

Tveir þriðju hlutar sölunnar eru líklega í Evrópu og Bandaríkjunum, en afgangurinn er í Asíu, Afríku og umheiminum.

Byrjunarverð JLR á nýja Defender, sem verður framleitt í Slóvakíu, er 40.000 pund (6.2 milljónir króna). Þrátt fyrir að nýjast Defebder-jeppinn haldi mörgum hefðbundnum hönnunarþáttum og segist leiðandi í akstri utan vega, þá er hann með nútíma flækjum svo sem vali á tengitvinnbúnaði, inndraganlegt sólarþak og afþreyingar- og upplýsingakerfi.

Ineos samstæðan hefur einnig dýft tánum í tísku með kaupum á mótorhjólafatamerkinu Belstaff, blandað sér í knattspyrnu með kaupum á franska liðinu Nice og Lausanne frá Sviss og í keppnishjólum með kaup á vinningsliði Tour de France Team Sky, nú Team Ineos.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is