TOYOTA GAZOO Racing mun sýna GR Supra Super GT hugmyndabíl á Tokyo Auto Salon
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612443747_8351628688403194233_5169539969000.jpg)
TOYOTA GAZOO Racing mun sýna hugmynd að þessum sportbíl á Tokyo Auto Salon 2019, sem haldin er í Makuhari-sýningarhöllinni í nágrenni Tókýó í Japan í þrjá daga frá 11. janúar til 13. janúar. Fyrsta daginn fá aðeins blaðamenn og fólk frá bílaiðnaðinum aðgang, en hina tvo dagana er sýningin opin almenningi.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612443746_7346509817435560273_5168726433000.jpg)
TOYOTA GAZOO Racing miðar að því í gegnum mótorsportsverkefni sín til að þróa bíla sína og fólk með það að markmiði að „framleiða sífellt betri bíla“. Fyrirtækið tekur þátt í keppnum í efstu flokkum, þar á meðal FIA World Rally Championship (WRC) og FIA World Endurance Championship (WEC), sem og landskeppnum og kappakstri. Tækni og kunnátta sem safnað er með þessari starfsemi er síðan nýtt í þróun nýrra bíla í fjöldaframleiðslu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612443748_6442889126541537291_5170510943000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612443749_4918187351011890437_5171527055000.jpg)
Sýningarbílar eru Yaris WRC, TS050 Hybrid og 2019 Lexus LC Nürburgring-gerð, en allir þessir bílar munu keppa í keppnum í efsta flokki á næsta ári. Supra-bíll sem tók þátt í fyrri aksturskeppnun á heimavígstöðvum ásamt GR Supra Super GT hugmyndabílnum sem fjallað var um hér að framan, verða einnig á sýningarbásnum í Makuhari-sýningarhöllinni í nágrenni Tókýó.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612443750_2349972694605980241_5172441718000.jpg)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1651927233_1247462052557664711_5553138495867798.jpg)
Miklar vangaveltur hafa verið undanfarið á ýmsum bílavefsíðum um framtíð í framleiðslu á rafhlöðum fyrir rafbíla. Vefurinn InsideEVs...
![](https://img.bilaskra.is/images/1658526006_3681505394295265735_12151910864138414.jpg)
Sjöundi áratugurinn var spennandi í bílaheiminum. Bílaframleiðsla var að breytast og nýjar og öðruvísi gerðir voru að líta dagsins ljós. Við ætlum að skoða fyrst árið 1968...
![](https://img.bilaskra.is/images/1641192007_7055039552895582061_1760044659587282.jpg)
Það var sumum íbúum Reykjavíkur nokkurt áhyggjuefni árið 1954 hversu margir unglingar virtust bókstaflega „helteknir“ af skellinöðrufaraldri sem geisaði. Það var í það minnsta mat Hannesar á horninu sem skrifaði töluvert í Aþýðublaðið um „faraldurinn“.
![](https://img.bilaskra.is/images/1639244406_4670855862047176487_6819006170786168.jpg)
Hafið þið ekki oft spáð í hvernig bíl ársins reiðir af þegar hann eldist? Hér tekur Pétur R. Pétursson nokkra bíla til skoðunar og fer yfir sigra þeirra og sorgir í smá samantekt...