Fleiri en 20.000 áhugasamir kaupendur að Taycan
Stuttgart/Genf. Fyrsti hreini rafbíll Porsche, Porsche Taycan, nýtur töluverðrar athygli á heimsvísu. Bíllinn mun ekki verða sýndur almenningi fyrr en í september og endanlegt útlit hans er ekki þekkt. Engu að síður hafa yfir 20.000 manns, allsstaðar að úr heiminum, sýnt kaupum á honum mjög mikinn áhuga eins og bílasmiðurinn staðfesti á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf. Það er sá fjöldi sem nú þegar hefur staðfest áhuga sinn á kaupum á bílnum með greiðslu 2.500 evrna staðfestingargreiðslu (í Evrópu).
Porsche Taycan mun verða frumsýndur í september og áætlað er að afhendingar fyrstu bíla fari fram fyrir árslok.
Hröðun bílsins frá 0 til 100 kílómetra hraða á klukkustund mun taka þónokkuð skemmri tíma en 3,5 sekúndur og drægnin verður um og yfir 500 kílómetrar samkvæmt NEDC staðlinum.
Auk þess verður mögulegt að ná fram 100 kílómetra hleðslu á einungis fjórum mínútum (mælt samkvæmt NEDC staðlinum). “Stórkostlegur áhugi á Taycan sýnir okkur að viðskiptavinir okkar og aðdáendur eru jafn yfirmáta spenntir fyrir fyrstu rafmögnuðu afurð Porsche og við – og af þeim sökum höfum við aukið við framleiðslugetuna” staðfestir Detlev von Platen, stjórnarmeðlimur Porsche. “Taycan mun verða sportlegasti og tæknilegasti bíll sinnar tegundar – sannur Porsche.”
Aðrar umfjallanir
Hann safnar skiltum, bílum, auglýsingaspjöldum, standklukkum, veggklukkum; Hann á frumgerð Batmobile og heilan helling af öllu mögulegu! Allt þetta mögulega er í „bílahellinum“ hans neðanjarðar í London.
Það verða harðgerðar, mildar og stílhreinar útfærslur á tengiblendingnum RAV4 sýndar á Toky Auto Salon...
Brimborg kynnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-Traveller 9 sæta 100% rafbíl með 75 kWh drifrafhlöðu með allt að 330 km drægni á 100%...
Nú er hann ekki „bara“ ökumaður og sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 heldur líka riddari. Hann var sæmdur riddaratign í morgun af Karli Bretaprinsi í Windsorkastala.