Fimm nýir bílar á leiðinni frá Volkswagen á árinu 2019
Þeir hjá Volkswagen eru tilbúnir að kynna nokkra nýja bíla í Evrópu á næsta ári, þar á meðal nýja Golf og litla jeppann T-Cross. Aðalframkvæmdastjóri Volkswagen Ralf Brandstaetter var í viðtali Automotive News í Evrópu á dögunum og lýsti forgangsröðun sinni fyrir vörumerkið.
Nýi T-Cross er einn af fimm nýjum eða endurnýjuðum módelum sem VW vörumerkið mun frumsýna á árinu 2019.
En við hverju má búast á árinu 2019?
„Við erum að hleypa af stokkunum nýjum vörum í Evrópu. Árið byrjar með litla jeppanum T-Cross. Honum verður fylgt eftir með alveg nýrri endurgerð á Passat, sem mun vera með mikið af nýjum stafrænum eiginleikum. Við munum síðan ljúka árinu með næstu kynslóð Golf, sem mun setja nýjan staðal í bílaframleiðslu. Golf er í eigin flokki og ég er viss um að nýja kynslóðin muni sannfæra viðskiptavini okkar um það enn og aftur. Undir lok árs hefst framleiðsla á rafbílnum I.D. Neo og síðast en ekki síst munum við bæta við bíl sem á eftir að vekja eftirtekt – blæjugerð af smájeppanum T-Roc“ segir Brandstaetter.
Aðrar umfjallanir
„Drullaðu þér í burtu,“ sagði guttinn í „umferðinni“ á leikskólalóðinni. Manstu eftir þessu? Myndbandið sem hér er vísað til birtist árið 2005 og var liður í auglýsingaherferð Umferðarstofu. Markmið herferðarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um eigin hegðun í umferðinni.
Polestar er bifreiðamerki í sameiginlegri eigu Volvo Car Group og móðurfyrirtækis þess, Geely Auto Group í Hangzhou í Kína. Það er með höfuðstöðvar í Gautaborg...
Nýr BMW iX1 rafknúinn crossover mun birtast á næsta ári og vera við hliðina á bensínknúnum X1 í framboði fyrirtækisins...
Það styttist óðfluga í bílasýninguna í Genf, sem opnar dyr sínar fyrir gestum í næstu viku, en við höfum þegar sagt...