Brimborg forsýnir nýjan Citroen C5 Aircross
Citroen á Íslandi, Brimborg, mun afhjúpa nýjan C5 Aircross SUV sportjeppa laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Þetta er tímamótabíll í sögu Citroën sem verið er að hefja sölu á. Hann kemur með nýjungum í sambandi við fjöðrunarkerfi bílsins, ásamt því að bjóða uppá alvöru franskan lúxus á mjög svo viðráðanlegu verði.
Óskar Bílakall fékk C5 Aircross lánaðann í vikunni til stuttrar prufu áður en Brimborg forsýnir bílinn og kom bíllinn honum á óvart. Frábær hönnun og mikil þægindi innandyra ásamt skemmtilegum aksturseiginleikum. Reynsluakstursgrein frá honum birtast von bráðar.
C5 Aircross verður í boði í þrem búnaðarútfærslum og kostar frá 3.890.000.
Aðrar umfjallanir
Í Toyota Tacoma er gert ráð fyrir fimm manns. Bílstjóra og í mesta lagi fjórum farþegum. Það skýrir þó ekki af hverju í honum eru 13 glasahaldarar! Eru bílahönnuðir í glasi eða hvað er eiginlega að frétta?
Automotive News Europe segir í dag frá því að Jaguar Land Rover tapaði dómsmáli Bretlandi um að fá vörumerkjaréttinn fyrir útlit gamla góða Land Rover...
VW og Porsche hafa í gegnum tíðina átt í samstarfi. Seint á sjöunda áratugnum lá það þannig við að bæði VW og Porsche vantaði nýjar gerðir sportbíls...
Það er ekkert óeðlilegt við það að tárast yfir því að sjá 34 ára E28 fara í gang eftir tólf ára hlé og vanrækslu. Er það nokkuð? Nei, gott því annars væri maður kannski eitthvað spes.