Nýr Toyota X Prologue hugmyndabíll gefur vísbendingu um lítinn rafknúinn sportjeppa

    • Toyota að hefja sókn rafbíla með sportjeppa á nýjum e-TNGA grunni

Toyota mun sýna nýjan hugmyndabíl þann 17. mars sem kallast X Prologue; hugmynd sem sýnir nýr lítinn rafknúinn sportjeppa sem gefur okkur innsýn á heila fjölskyldu af rafknúnum Toyotum sem aðeins nota rafhlöður.

Í desember 2020 sagði fyrirtækið að það myndi forskoða nýjan rafknúinn jeppa „á næstu mánuðum.“

Framboðið gæti verið merkt með „BZ“ - sem stendur fyrir „Beyond Zero - og Toyota hefur sótt um vörumerki fyrir gerðirnar allt frá BZ1 til BZ5.

image

Toyota X Prologue - mynd Toyoyta.

Ekkert hefur komið fram um nýja hugmyndabílinn annað en nafnið (‘X’ sem bendir til sportjeppa) og vísbending frá Toyota um að þetta sé lítil bifreið. En meðfylgjandi kynningarmynd staðfestir að hún verði að fullu rafknúin.

Hönnunin felur í sér nýja hönnun á framljósum sem ná frá einu aðalljósinu að öðru og nærr yfir nýja auða svæðið þar sem grillið væri annars.

Toyota, sem nú er ekki með rafknúin ökutæki sem aðeins nota rafhlöður í framboði sínu í Evrópu, hefur áður sagt að það stefni að því að selja eina milljón ökutækja á heimsvísu frá 2030 með fjölskyldu af 10 rafbílum sem aðeins nota rafhlöður, sem verða gerðar aðgengilegar snemma á 20. áratugnum.

Hybrid og vetnisökutæki munu samt standa fyrir mestu af rafmagnsframboði Toyota.

Toyota segir að grunnurinn sé sveigjanlegur og hægt sé að nota hann „í ýmsum vörutegundum,“ með frjálsum breytileika í lengd ökutækis, breidd, hjólhafi og hæð. e-TNGA getur einnig notað rafmótorkerfi að framan, aftan eða fjórhjóladrif, með rafhlöðum af mismunandi stærð líka.

(frétt á Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is