Ford búnir að fá yfir 125.000 pantanir á 2021 Bronco
Ford Bronco árgerð 2021 er einn af nýju bílunum sem margir bíða eftir að sjá á vegunum og það lítur út fyrir að kaupendur séu jafn áhugasamir um nýja Bronco. Ford hefur staðfest að fyrirtækið hafi fengið meira en 125.000 pantanir á Bronco árgerð 2021, síðan það hóf að taka við pöntunum í janúar.
Ford fékk 190.000 fyrir fram pantanir á nýja Bronco, sem þýðir að um tveir þriðju þeirra hafa breyst í raunverulegar sölupantanir.
„Eftirspurnin ... hefur bara verið yfirþyrmandi“, sagði Mark Grueber, neytendamarkaðsstjóri Ford, við The Detroit News.
„Við erum mjög spennt og ánægð með viðskiptahlutfallið og mjög auðmjúk hvað varðar eftirspurnina. Nú, við einbeitum okkur aðeins að því að reyna að koma þessum eintökum af Bronco til þessara viðskiptavina sem fyrst“.
(frétt á Torque Report)
Aðrar umfjallanir
Jaguar Land Rover á Íslandi var með forkynningu á nýjum Range Rover í höfustöðvum sínum að Hesthálsi á fimmtudaginn....
Hinn sérstæði Mercedes G-Class er tilbúinn fyrir endurnýjun en mun halda túrbó V8 og mun koma á næsta ári 2023...
Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um fyrirhugaðar lækkanir á umferðarhraða í Reykjavík, á þeim götum sem borgin hefur yfir að segja...
Eins og varla hefur farið fram hjá neinum er heimsmeistaramótið í knattspyrnu nýhafið. 32 landslið bítast um titilinn og sparkspekingar úti um allan heim velta vöngum yfir...