Citroen snýr aftur í miðstærð með nýjan C5 X

Þessi spennandi bíll sem smíðaður er í Kína sameinar þætti fólksbíls, stationbíls og sportjeppa; tengitvinn blendingur í boði

image

Citroen C5 X verður smíðaður í Stellantis-Dongfeng samrekstrarverksmiðjunni í Chengdu í Kína og fluttur út til Evrópu.

C5 X, nýja flaggskipsmódelið, verður sýnt almenningi í næstu viku á bílasýningunni í Sjanghæ í Kína, þar sem það verður byggt í Stellantis-Dongfeng samrekstrarverksmiðju í Chengdu og flutt út til Evrópu.

Kemur á markað í Evrópu seinni hluta ársins

Bíllinn mun fara í sölu í Evrópu seinni hluta þessa árs. Citroen hefur ekki gefið út verð.

image

C5 X byggir á sama EMP2 grunni og Peugeot 508 L, aðeins Kínaútgáfa af meðalstórum hlaðbak með auknu hjólhafi til að gefa meira pláss fyrir farþega í aftursæti.

Eins og 508 og önnur gerð úr systkinahópnum, DS 9 (einnig sett saman í Kína), verður C5 X boðinn með valkosti sem tengiltvinnbíl, auk bensín- og dísilgerða fyrir Evrópu.

Útlitseinkenni C5 X fela í sér framlengda, hallandi þaklínu að aftan með tveimur litlum vindskeiðum, svipað og á nýkomnum Citroen, sem einnig hefur nokkuð útlit „crossover“.

image

„Bílnum er beint að fólki sem er vant hærri akstursstöðu og auðveldari umgengni við inn- og útstig en vill ekki sportjeppa-útlit“, sagði Vincent Cobee, forstjóri Citroen. „Bíllinn er með rými og virkni stationbíls“.

image

Hjólhaf C5-X var aukið til að búa til meira pláss í aftursæti.

Cobee sagði að C5 X myndi höfða til kaupenda miðlungsstórra fólksbifreiða og stationbíla, sem og þéttra sportjeppa.

Aðrir bílaframleiðendur hafa áður notað svipað útlit, þar á meðal Lexus, með IS300 SportCross, og Fiat, með Croma, báðir á 2. áratug síðustu aldar.

Citroen keppti síðast í þessum stærðarflokki með C5, í fólksbíls- og stationútgáfum, sem var fellt úr framboðslínunni árið 2019. Síðan þá hefur flaggskipið verið C5 Aircross sportjeppinn.

image

Með jeppalíkum atriðum á C5 X eru svartar hjólskálar úr plasti og stuðarar sem gefa vísbendingu um undirvagnsvörn. Há og mjó dekk eru á 19 tommu felgum til að veita hækkaða akstursstöðu.

Kína er markmarkaður

Hefðbundinn „þriggja kassa“ meðalstór fólksbíll hefur verið undir þrýstingi frá sportjeppum, staðreynd sem Cobee viðurkenndi, en hann sagði að hann væri enn þá ómissandi í Kína, markaði sem Carlos Tavares forstjóri Stellantis hefur gert að forgangsmarkaði á þessu ári.

„Miðstærðarbíllinn er með þrisvar sinnum stærri markaðshlutdeild í Kína en í Evrópu“, sagði hann.

Volkswagen Passat leiddi á meðalstóra hluta markaðarins í Evrópu á síðasta ári af, með 115.763 bíla sölu, samkvæmt JATO Dynamics. Eftir Passat kom systkini VW Group, Skoda Superb, með 60.254 bíla sölu; Peugeot 508, með 28.741; og Ford Mondeo, með 21.453 selda bíla. Heildarsalan var 297.863 og dróst saman um 29 prósent.

image

Eiginleikar C5 X eru 12 tommu láréttur miðlægur snertiskjár, nýtt viðmót á upplýsingakerfi og nýjasta útgáfan af virkri fjöðrun Citroen sem notar framsækna dempun efst og neðst í færslu fjöðrunarinnar. Í tengitvinnútgáfum af C5 X eru þrjár fjöðunarstillingar.

image

Citroen hefur ekki gefið út allar tæknilegar upplýsingar en sagði að tengitvinnbílsútgáfan verði alls 225 hestöfl með meira en 50 km drægni á hreinu rafmagni.

(frétt á Automotive News Europe – myndir frá Citroen)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is