NÝIR CITROËN BÍLAR FRÁ BRIMBORG ERU NÚ MEÐ 7 ÁRA ÁBYRGÐ OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
- ÁBYRGÐIN ER VÍÐTÆK VERKSMIÐJUÁBYRGÐ FYRIR FÓLKSBÍLA OG SENDIBÍLA
- ÖRUGG GÆÐI CITROËN MEÐ LENGRI ÁBYRGÐ HJÁ BRIMBORG
Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni og býðst nú með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á nýjum fólksbílum og sendibílum auk 8 ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla. Ábyrgðin er einnig háð akstri og takmarkast við akstur að hámarki 140 -160 þúsund km, hvort sem kemur á undan, km fjöldi eða tími.
Ábyrgð drifrafhlöðu miðast við að hleðslugetan fari ekki undir 70% á 8 árum. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda um þjónustuskoðanir.
Regluleg þjónusta og víðtæk verksmiðjuábyrgð nýrra Citroën bíla frá Brimborg tryggir meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.
Forsendur ábyrgðar
Greinargóðar upplýsingar um skilmála ábyrgðar Citroën er finna í rafrænni eigandahandbók ásamt viðauka sem söluráðgjafi fer vel yfir við afhendingu nýrrar bifreiðar.
Brimborg fylgir stöðluðu þjónustueftirliti framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi.
Þjónustuverkstæði Brimborgar eða viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar á landsbyggðinni framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði.
Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Citroën geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð en þjónustuaðila Brimborgar um land allt má finna á brimborg.is.
Nánari upplýsingar um lengda verksmiðjuábyrgð Citroën er að finna á vef Citroën á Íslandi | Brimborg eða hjá sölustjóra , Benný Ósk Harðardóttur á bennyh@brimborg.is eða í síma 5157802.
Aðrar umfjallanir
Engin lögga var að fá sér kleinuhring þegar bíll ók á nokkurri ferð inn í City Donuts í Aurora í Colorado á laugardagsmorguninn. Annars hefðu mennirnir tveir ef til vill verið handsamaðir á staðnum en þeir hlupu á brott og skildu allt eftir í klessu.
Það er ekkert skrýtið að þeir séu óðir í pallbíla þarna vestanhafs. Auglýsingarnar eru alveg ótrúlega heillandi, svona oftast nær og bílarnir í flestum tilvikum algjör tryllitæki. Hér er árgerð 2023 af Ram 2500 Rebel® auglýst og það er ekki laust við að maður verði dálítið spenntur. Stórvarasamar þessar bílaauglýsingar!
Brimborg mun í vor opna nýjan Polestar Destination sýningarsal fyrir Polestar rafbíla og á þaki hans verður reist stærsta sólarorkuver á Íslandi og það fyrsta í Reykjavík...
Rebelle Rally er keppni þar sem saman fléttast ást á akstri og svakaleg áskorun í nákvæmnisakstri. Rallið, sem eingöngu er ætlað konum, tekur átta daga og eknir eru um 2500 kílómetrar í eyðimörk.