Volvo FH16 mest seldi vörubíllinn
Nýir Volvo vörubílar seljast eins og heitar lummur þessa dagana og það sem af er ári er Volvo með 31% hlutdeild af seldum vörubílum yfir 10 tonn.
Markaður fyrir vörubíla yfir 10 tonn fyrstu sex mánuði ársins er 58 bílar og er það aukning frá sama tíma í fyrra um 20,8%. Volvo er því að vaxa mun hraðar og auka hlutdeild sína á vörubílamarkaði.
Veltir - Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar
Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er umboðsaðili Volvo vörubíla, Volvo vinnuvéla, Volvo rúta og strætisvagna og Volvo Penta bátavéla.
„Efnahagslífið er að taka mjög hressilega við sér sem er að skila sér í mikilli aukningu á eftirspurn eftir atvinnubílum og atvinnutækjum. Það hefur leitt til þess að pantanastaða Veltis fyrir nýja atvinnubíla og atvinnutæki er mjög sterk sem mun tryggja umtalsverðan vöxt einnig á seinni hluta ársins“, segir Marteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri Veltis.
Aðrar umfjallanir
IAA Mobility 2023 stendur yfir frá 5.-10. september, með frumsýningum frá BMW, Ford, Mercedes og VW...
Fyrsti bíllinn sem rúllaði af færibandinu í Solihull var kláraður um það bil tveimur dögum eftir að framleiðsla hófst...
Þegar við sjáum myndir af sebramynstruðum bíl sem var „spottaður“ við prófanir, hugsum við ekki endilega um vinnuna að baki þessum myndum. Og hagsmunaárekstra og rimmur!
Væntanleg breyting á ívilnun yfirvalda vegna tengitvinnbíla frá og með áramótum hefur verið í fréttum síðustu daga, og þá helst vegna þess að séu slíkir bílar til hjá umboðum, þá séu þeir annað hvort uppseldir eða fráteknir.