Þegar stórir bílar frá Fiat voru aðalmálið á Íslandi
Flestir sem fylgjast með bílamarkaði í dag vita að Fiat á Ítalíu er í dag hluti af Stellantis samsteypunni eftir að Stellantis N.V. var stofnað á þessu ári. Stellantis er hollenskt fjölþjóðlegt bifreiðaframleiðslufyrirtæki sem byggir á samruna milli Fiat Chrysler Automobiles á Ítalíu og frönsku PSA samsteypunnar.
Sameining Fiat og Chrysler átti hins vegar rætur sínar að rekja til ársins 2009 eftir að Chrysler fór fram á endurskipulagningu vegna gjaldþrotaskipta 11. apríl 2009.
Í framhaldinu fór Chrysler í gjaldþrotameðferð sem endaði síðan með því að Fiat S.p.A. og Chrysler Group LLC sameinuðust í FCA 12. október 2014 í kjölfar samþykkis stjórnar 15. júní 2014 og hluthafa 1. ágúst 2014.
Góðir farþegabílar
Þegar við erum að skoða „bílasöguna“ í upphafi bílaaldar hér á landi kemur nafn Fiat fljótlega upp, og þá einkum sem margra sæta leigubílar sem þóttu henta mjög vel til farþegaflutninga, einkum í lengri ferðum út frá Reykjavík.
Hér má sjá þrjá Fiat-bíla í Almannagjá 1925 eða 1926. Lengst til vinstri er ER 85, fyrsti Fiat-bíllinn sem fluttur var til landsins, og næst eru tveir fjórtán sæta Fiat-bílar, ER 71 og ER 73. Myndin er úr bók Guðlaugs Jónssonar – Bifreiðar á Íslandi 1904-1930.
Bílafloti BSR árið 1927 fyrir framan stöðina í Austurstræti. Þar má sjá bíla af gerðunum Fiat og Buick. Myndin er úr bók Guðlaugs Jónssonar – Bifreiðar á Íslandi 1904-1930.
Stóru Fiat-bílarnir þóttu góðir til flutninga á fólki út fyrir Reykjavík og hér má sjá 14 sæta Fiat-bíla með fólk í skemmtiferð á Selfossi. Í baksýn eru kaupfélagið Sigtún og kaupfélagið Höfn. Myndin er úr bók Guðlaugs Jónssonar – Bifreiðar á Íslandi 1904-1930.
Kristján tíundi, konungur Íslands og Danmerkur ráðgerði að koma í heimsókn hingað árið 1920, en af þeirrri ferð varð ekki, en hann kom hins vegar til landsins árið eftir og þá var farin mikil hópferð á bílum til Þingvalla og víðar.
Þegar Fiat var „konungsbíllinn“
Árið 1926 kom Kristján tíundi aftur til Íslands og enn var farið í ferðir út frá Reykjavík og í þetta sinn var „konungsbíllinn“ af gerðinni Fiat, RE 4, bíll með opnu húsi og á myndinni má sjá Kristján tíunda og Knud Zimsen borgarstjóra í bílnum. Myndin er úr bók Guðlaugs Jónssonar – Bifreiðar á Íslandi 1904-1930.
Næsta blómaskeið Fiat á Íslandi
Eftir þetta „blómaskeið“ Fiat á Íslandi var frekar hljótt um Fiat á markaði hér á landi. Egill Vilhjálmsson var með Fiat-umboði á árunum fyrir heimstyrjöldina, en síðar tók Orka hf við umboðinu þar til að Davíð Sigurðsson fór að flytja inn Fiat-bíla á árinu 1966.
Innflutningur á bílum frá Fiat náði toppi þegar Fiat Uno var kynntur til sögunnar 1983 og sá bíl seldist vel um árabil, eitt árið komu meira en eitt þúsund UNO til landsins.
En aftur dró ský fyrir sólu og sala á Fiat minnkaði mikið og um skeið varð nánast enginn innflutningur á Fiat til landsins.
ÍSBAND og Fiat
Það var síðan í byrjun árs 2016 að Fiat Chrysler í Evrópu og Bandaríkjunum valdi ÍSBAND til að vera dreifingaraðila sinn á Íslandi . Í byrjun árs 2017 opnaði ÍSBAND nýjan og endurbættan sýningarsal í Þverholti í Mosfellsbæ, þar sem fyrirtækið er enn til húsa.
Íslensk-Bandaríska ehf eða ÍSBAND eins og fyrirtækið er daglega kallað var stofnað 1998 af Októ Þorgrímssyni utan um innflutning á notuðum bílum frá Bandaríkjunum.
Fljótlega þróaðst reksturinn í að flytja einnig inn nýja bíla og ferðavagna. Í framhaldinu var fyrirtækið öflugt í innflutningi á bílum frá Jeep, Ram og Dodge
Aðrar umfjallanir
Áður en hugað er að kaupum á fornbíl þarf að skoða nokkur atriði. Númer 1, 2 og 3 er að hafa húsnæði fyrir bílinn, hvort sem það er bílskúr, pláss í...
Autoblog segir frá því á sínum vef að það hafi verið um tveggja vikna skeið freyðandi orðrómur um endurvakningu Ford Mustang...
Þegar viðskiptavinir segja tæplega hálfa söguna og allt er í heljargreipum er kannski fátt um fína drætti. Eins og þegar komið er með bíl í smurningu en ekki minnst orði á að bíllinn sé sundurskotinn eins og gataskipti. Kannski ekki eitthvað sem maður lendir í á Íslandi!
Ram 1500 REV vörumerkið verður notað fyrir rafknúna Ram pallbílinn...