Uppfærður Subaru Forester kynntur í Japan
- Væntanlegur Forester Wilderness mun næstum örugglega byggja á nýju hönnuninni
Uppfærður Subaru Forester hefur verið kynntur í Japan. Autoblog-vefurinn telur er næstum öruggt að þessi andlitslyfting sé forsýning á því sem búast megi við þegar hinn vinsæli crossover fær uppfærslu sína á miðju tímabili kynslóðar í Norður-Ameríku, eins og kynningarmyndir á Forester Wilderness hafa einnig gefið til kynna.
Við eigum svo eftir að sjá hvernig þetta skilar sér í nýjum Forester hér á Evrópumarkaði.
Nýi framendinn lítur út fyrir að vera aðeins svipmeiri en núverandi Forester. Endurhönnuð, ferköntuð framljós fá uppfært útlit sem vísar í átt að nýju, hyrndara grilli. Undir þeim gefa útstandandi brúnir ekki aðeins meiri svip heldur geta þær verndað framljósin örlítið betur í minniháttar rispum á bílastæðum.
Sömuleiðis virðist innréttingin ekki hafa breyst verulega. Engu að síður getum við ekki verið viss um að innri markaðurinn á Japan muni skila sér alfarið yfir til Bandaríkjanna (og svo til Evrópu).
Væntanlegur Forester Wilderness líklega svipaður
Athygli vekur þó að væntanlegur Forester Wilderness mun líklega nota þessar útlitsbreytingar sem grunn. Það sáust kynningarmyndir af nýja Wilderness í síðustu viku og margt bendir til þess að þetta verði svipað.
Nýja útlitið gefur Forester aðeins meiri karakter. Framendinn á eldri bílnum var ekki með sterkan svip svo það má alveg breytast.
Þar sem fréttir herma að Forester Wilderness muni verða frumsýndur 2. september gerum við ráð fyrir að uppfærði Forester verði formlega frumsýndur á sama tíma.
Aðrar umfjallanir
Þó svo að bílastæði séu oftast nokkuð vel merkt, gjarnan með hvítum línum, er ótrúlega algengt að bílstjórum takist að klúðra því að leggja bílnum t.d. innan línanna. „Hvernig var þetta nú aftur? Var það ofan á, yfir, undir eða bara langt frá hvítu línunum?“ Einhvern veginn svona hlýtur þetta að gerast.
Ótrúlegt atvik náðist á myndband: Skýstrókur tók pallbíl sem var á ferð en ökumaðurinn lifði af og er einn af fáum til frásagnar um slíka upplifun!
Skoska sprotafyrirtækið Munro mun keppa við væntanlegan Ineos Grenadier-jeppa – munurinn er að þessi er aðeins rafbíll...
Þeir urðu nú til nokkrir brandararnir þegar hinn ágæti bíll Volkswagen Bora kom á markað hér á landi. Ótrúlegasta fók fór að segja brandara...