- Mercedes undirbýr G-Class fyrir rafmagnsöld með rafhlöðuknúnum hugmyndabíl
- Hugmyndabíllinn EQG heldur stigagrindinni frá undirvagni G-Class með brunavél
Mercedes er með rafmagnsútgáfu af G-Class jeppanum í pípunum sem heldur þessum torfærujeppa vörumerkisins á réttu róli þar sem bílaframleiðendur auka framboð sitt á sviði rafbíla, og sýnir hugmyndaútgáfu af G-Class EQG á bílasýningunni í München.
Mercedes greindi frá að hugmyndabíllinn EQG væri „næstum tilbúinn til framleiðslu“ og gæfi góða mynd af framtíðarbílnum.
Fjórir rafmótorar hugmyndabílsins EQG eru staðsettir nálægt hverju hjóli til að leyfa átaksstýringu á hverju þeirra og skila því sem Mercedes lýsir sem einstökum aksturseiginleikum jafnt á vegum sem utan vega.
Concept EQG, eða hugmyndabíllinn, var afhjúpaður á vefkynningu á sunnudag í tilefni af opinberri frumsýningu á IAA bílasýningunni í München.
Bíllinn heldur stigagrind undirvagns G-Class með brunavél og er með rafhlöðurnar innan grunns bílsins.
Engin rafhlöðustærð eða tölur um drægni á rafmagninu hafa verið gefnar upp.
Fjórir rafmótorar hugmyndabílsins eru staðsettir nálægt hverju hjóli til að leyfa átaksstýringu á hverju og einu og skila því sem Mercedes lýsir sem einstökum aksturseiginleikum jafnt innan sem utan vega.
Tveggja þrepa kassi gerir ráð fyrir sömu lágmarkslækkun á gírum fyrir hægan torfæruakstur. Kassinn er fáanlegur í gerðum með brunavél.
Þessi hugmyndaútgáfa EQG heldur köntuðu útliti jeppans en eitt og annað „rafmagnað“ greinir hann þó frá hinum.
Grillinu hefur verið lokað með svokölluðu „Black Panel“ með upplýstu Mercedes merki í miðjunni og ljósastiku um brúnina. Á grillinu eru einnig líflegir „kringlóttir ferningar“ með bláu merki EQ rafmagnsgerða Mercedes.
Varadekkið hefur verið fjarlægt og skipt út fyrir læsanlegan kassa sem er með svipuðu útliti og hönnun vegghleðslutækis rafbílsins. Mercedes bendir á að hægt sé að geyma hleðslusnúruna þar.
Hann sagði á þinginu að framtíð lúxusjeppans væri tryggð, þrátt fyrir sérstöðu.
„Áður fyrr voru umræður um hvort við ættum að hætta með þessa gerð. Eins og ég sé hlutina núna myndi ég segja að síðasti Mercedes sem smíðaður verður, verður G-Class", sagði Kallenius.
(Automobile News Europe – myndir Mercedes)
Aðrar umfjallanir
Næsta kynslóð Land Rover Defender verður byggð á aðskildum vettvangi frá næstu kynslóð...
Það er ástæða fyrir því að sumt ratar á útsölu. Hér eru nokkur body kit fyrir Toyota Land Cruiser sem sum hver eru á lækkuðu verði um þessar mundir í útlöndum. Hvað segja lesendur? Er þetta grenjandi ljótt eða hrein og klár snilld á góðu verði?
Í miðjum Egilsstaðabæ eystra leynist týndur fjárssjóður, alltént í augum bílamanna. Þar hafa dagað uppi allmargir gamlir bílar sem fengið hafa að sjá betri daga á sinni lífsstíð...
AB varahlutir hafa sýnt og sannað að þar vinnur fólk sem er til í margs konar sprell þegar það á við. Í gær gafst auðvitað tækifæri til að bregða á leik og vera með galsa því þann fyrsta apríl má margt sem aðra daga telst tilheyra gráu svæði.