Besta akstursíþróttafólk heims kemur almenningi oftar en ekki fyrir sjónir sem svakalega alvarlegt og einbeitt fólk. Skárra væri það nú ef Lewis Hamilton væri ekki einbeittur á brautinni í Formúlu 1, svo dæmi sé tekið. Þá myndum við ekki vita hver hann er.
Innvígsla nýrra ökukennara
Fyrir nokkrum árum kom upp sú hugmynd í ökuskóla nokkrum úti í heimi, að bjóða nýráðna kennara, velkomna til starfa við skólann með „dálitlu“ sprelli.
Gamall karl með hatt
Rallýkappinn norski, Petter Solberg, er ekki sérlega gamall. En fyrir fimm árum síðan brá hann sér í hlutverk gamals manns. „Gamli maðurinn“ sem ók um á Mercedes-Benz AMG C63 hringdi eftir aðstoð bifvélavirkja bílaframleiðandans og kvartaði yfir undarlegu hljóði í bílnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1632174007_2696194175476301681_541981395371011.jpg)
Hér er myndbandið með þeim „gamla“:
Stórvarasamur starfsmaður á þýsku verkstæði
Margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel, skemmti sér konunglega í hlutverki luralegs bifvélavirkja fyrir fáeinum árum. Honum tókst næstum að hræða líftóruna úr saklausum viðskiptavinum á þýsku verkstæði. Gjörið svo vel:
Hláturinn lengir lífið
Vonandi kom þetta sprell ykkur, lesendur góðir, í jafngóðan gír og undirritaðri. Jújú, þetta eru „eldgömul“ myndbönd og örugglega margir búnir að horfa á þau.
Ráðlegging blaðamanns er eftirfarandi: Horfið bara aftur á þetta!
Ef hláturinn lengir lífið þá er þetta eðalfínt efni til að bæta nokkrum mánuðum við lífið!
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439230_5542887395556359332_652678225000.jpg)
PARÍS - Renault er að færa nýju kynslóðina af Kangoo sendibílnum ofar á markaðinn, með auknum tengimöguleikum og valkostum sem lúta að aðstoð við ökumenn...
![](https://img.bilaskra.is/images/1645656007_4244092628143448152_2047780304810378.jpg)
Tesla Cybertruck mun bara alls ekkert virka neitt spes í samanburði við bílinn Thundertruck, verði sá síðarnefndi að veruleika. Sexhjóla, 940 hestöfl og með drægni yfir 1000 kílómetra. Er það ekki eitthvað?
![](https://img.bilaskra.is/images/1668206408_2231296548920456556_21832313181305234.jpg)
Mercedes-AMG ONE setti nýtt met framleiðslubíla á Nürburgring-Nordschleife
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443671_7431474597045548556_5093306331000.jpg)
Volkswagen staðfesti á bílasýningunni í Shanghai áætlanir um að hleypa af stokkunum sportkeppa sem notar eingöngu rafmagn og byggir á ID Roomzz hugmyndabílnum