BL við Sævarhöfða kynnir á laugardag, 9. október milli kl. 12 og 16, uppfærðan og enn sportlegri fjórhjóladrifinn BMW X3 sem er einn söluhæsti fólksbíll framleiðandans. Bíllinn hefur tekið fáguðum, en nokkuð ákveðnum breytingum bæði útlitslega og í farþegarými auk þess sem BMW býður viðskiptavinum sínum nú aukið val í búnaðarútfærslum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633700406_3015528689646623290_1275006664796214.jpg)
Sem dæmi um útlitsbreytingar á nýjum BMW X3, sem kom á síðasta ári í fyrsta sinn í tengiltvinnútfærslu bensínvélar og rafmótors (PHEV), má nefna nýja hönnun á sambyggðu framstykki stuðara og svuntu með lóðréttum loftinntökum til beggja hliða.
Þá er grillið stærra en áður og nú hannað sem eitt stykki í stað tveggja aðskilinna eininga.
Í ljóðréttri miðjubrú grillsins er val um myndavél. Þá eru framljósin örlítið lægri en áður og nú eingöngu búin díóðum (LED).
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633700408_7256527427083531506_1275008491733046.jpg)
Að aftan eru komin sportlegri afturljós, þar sem díóðurnar eru einnig alls ráðandi, nýir sexhyrningslaga púströrsendar eins og á X5 í stað þeirra kringlóttu sem áður voru auk þess sem komin er hlífðarplata undir afturstuðara, til að verja bílinn við akstur á misjöfnum vegslóðum.
Breytingar í farþegarými
Farþegarýmið hefur einnig fengið ákveðna upplyftingu, m.a. með sinkhúðuðum römmum á lofttúðum.
Að síðustu má nefna mælaborðið framan við ökumann sem fengið hefur áþekka hönnun og er í X5, og vönduð sportsætin sem nú eru meðal staðalbúnaðar í X3.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633700410_3787891407666726269_1275010117847442.jpg)
Vél og afköst
BMW X3 PHEV er fáanlegur í tveimur útfærslum; annars vegar X-Line með 292 hestafla vél eins og áður og kostar hann 9.890.000 kr., og hins vegar M-Sport, sem einnig er með 292 hestafla vélinni og kostar hann 10.890.000 kr.
BMW X3 PHEV hefur allt að 43 km drægni á rafhlöðunni og er dráttargeta bílsins tvö tonn. Allar nánari upplýsingar um ríkulegan staðalbúnað BMW X3 PHEV og fáanlegan aukabúnað eru að finna í verðlista á BMW.is.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1638024007_3946178054532183229_5598606962816511.jpg)
Hefur þú séð formúlubíl á keðjum? En í snjó? Það hefur auðvitað ýmislegt verið gert til að vekja athygli á Formúlu 1 og sumt er eftirminnilegra en annað. Hér segir frá því þegar átján ára strákur ók formúlubíl á skíðasvæðinu í Kitzbühel í Austurríki.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443272_3826089243674734485_4694863266000.jpg)
Fyrsti fjöldaframleiddi rafbíll Mazda var frumsýndur í dag á bílasýningunni í Tókýó...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612444319_2158178112475816494_5741214108000.jpg)
Hekla fékk eitt sýningareintak til landsins sem nú þegar hefur verið sent aftur út.
![](https://img.bilaskra.is/images/1647715206_3141898501092608549_1341111335154249.jpg)
Maður hættir ekki að leika sér af því maður verður gamall. Maður verður gamall því að maður hættir að leika sér. Er það ekki? Bob Helms heitir náungi sem er mikill ökuþór í Ameríku. Hann er ekki hættur að leika sér enda bara 77 ára og ekki ástæða til að hætta.