Tæplega 26% aukning nýskráninga á milli ára
16.552 bílar skráðir það sem af er þessu ári á móti 13.143 á sama tíma í fyrra
Samgöngustofa opnaði í síðasta mánuði nýjan og betri bifreiðatöluvef. Með nýjum vef er aðgengi að tölfræði um ökutæki á Íslandi stórbætt og framsetningin býður upp á ýmsa möguleika sem ekki voru áður til staðar.
Með nýja vefnum er m.a. fjölmiðlum og almenningi auðveldað aðgengi að upplýsingum vegna umfjöllunar um ökutæki á Íslandi.
Á þessum nýja bifreiðatöluvef er m.a. hægt að:
- Skoða upplýsingar úr ökutækjaskrá með notendavænum og skilvirkum hætti.
- Bera saman nýskráningar ökutækja eftir orkugjöfum.
- Gera samanburð á ýmiskonar tölfræði milli ára.
- Skoða bifreiðaskráningu eftir bæjarfélögum.
Toyota á toppnum, en Kia og Hyundai fylgja skammt á eftir
Þega tölfræði er skoðuð nánar á þessum vef með tilliti til nýskráninga sem af er árinu, sést að Toyota trónir á toppnum með 1842 nýja bíla, en Kia kemur þar skammt á eftir með 1664 bíla og Hyundai er síðan í þriðja sæti með 1167 bíla.
Þaðan er síðan svolítið hopp niður í fjórða sætið en þar er Volkswagen með 757 bíla. Þar nánast jafnfætis situr Tesla með 754 bíla og þar er næst Suzuki með 700 bíla.
Outlander í efsta sæti af einstökum gerðum
Þegar við skoðum hins vegar stöðuna á einstökum gerðum bíla, þá kemur í ljós að Mitsubishi Outlander er í efsta sæti með alls 624 bíla skráða hjá Samgöngustofu það sem af er árinu.
Aukin rafbílavæðing skilar sér svo í fjórða sætinu með rafbílinn Tesla Model 3 í 438 eintökum.
En það er svo „alvöru“ jeppi í fimmta sætinu; Toyota Land Cruiser með 354 bíla skráða á árinu það sem af er.
Rafmagnið sækir á
Þessi tölfræðivefur sýnir okkur einnig hvernig innflutningurinn skiptist eftir orkugjöfum. Þar sækir rafmagnið verulega á, því í efsta sæti eru bílar með blandaða orkugjafa – bensínvél að viðbættri raftengingu – sem alls eru 3.402 skráðir bílar.
Fyrir þá sem hafa gaman af að skoða svona tölur liggur beinast við að fara á þennan tölfræðivef Samgöngustofu og skoða betur.
Aðrar umfjallanir
Margar skemmtilegar bílasögur tengjast því þegar „alvöru“ bílaöld kom til Íslands á árum heimsstyrjaldarinnar 1940-1945.
Hennessey, bandaríska breytingafyrirtækið sem var á bak við Venom GT, F5 ofurbílinn og fullt af endurbættum...
Stóra fólksflutningabifreiðin sem hefur séð tímana tvenna og sett sniðmát fyrir marga nútíma jeppa...
Jafnvel þó að Dodge Demon væri hugsaður sem sem einstök útgáfa og bara til í einni árgerð sem alvöru amerískur "muscle car"...