Foxconn samstarfsaðili Apple iPhone kynnir rafbílahugmyndir
Fyrirtækið, sem er í Taívan, kynnti rafknúinn sportjeppa, fólksbifreið og fólksflutningabíl
Öðru hvoru hafa borist fréttir af því að Apple ætli sér inn á rafbílamarkaðinn. Á dögunum kom Reuters-fréttastofan með aðeins ítarlegri fréttir af þessu, og Automotive News Europe skrifar um þetta á sínum vef.
Foxconn Technology Group kynnti fyrstu rafbíla sína; hugsanlega tengjast bílarnir rafbílaverkefni Apple sem hefur sagt að rafbíll undir merki þess[Apple] komi á markað fyrir árið 2024. Hver mun framleiða bílinn þann, er enn óljóst, en þetta útspil Foxconn gæti verið fyrsta vísbendingin í þá átt.
Sporteppi og fólksbifreið sem Foxconn kynnti sl. mánudag eru hugmyndabílar sem framleiðandinn ætlar að smíða. Það er nokkuð fjarri því sem framleiðandinn hefur áður stundað og sérhæft sig í, þ.e. íhlutum fyrir iPhone og aðrar snjallsímagerðir.
Fólksbíllinn, Model-E, sem var þróaður með ítalska hönnunarfyrirtækinu Pininfarina, verður seldur af ótilgreindum bílaframleiðanda utan Taívan á næstu árum en sportjeppinn verður seldur undir einu af vörumerkjum Yulon og er áætlað að hann komi á markað í Taívan árið 2023.
Yfirmenn, þar á meðal Young Liu-way, stjórnarformaður flaggskipseiningar Foxconn Hon Hai Precision Industry, sem er hér við Foxtron Model C, nýafhjúpuðu farartækinu á tækniviðburði fyrirtækisins í Taipei. Foxtron Model C „crossover“ eða sportjeppi, er fyrsta gerðin sem byggð er á opnum palli Hon Hai rafbíla. 4.64 metra langi rafbíllinn var sýndur á Foxconn viðburði í Taipei, Taívan þann 18. október. Mynd: REUTERS.
Er stærsti framleiðandi á iPhone farsímum
Foxconn er stærsti framleiðandi iPhone sem gefur því forskot sem hugsanlegur samstarfsaðili fyrir bílaframleiðendur þar sem bandaríska fyrirtækið er að vega það og meta að koma inn í bílaheiminn.
„Við erum ekki lengur nýi krakkinn í bænum,“ sagði Young Liu. „Við höfum smám saman byggt upp keðju rafíhluta og kynnt vélbúnaðinn okkar fyrir rafbíla.“
Yulon verður fyrsti viðskiptavinur rafbíla hjá Foxconn, sagði Lilian Chen, formaður Yulon, á viðburðinum í Taipei. Rafknúna fólksbifreiðin sem Foxconn smíðaði fyrir fyrirtækið mun kosta 35.700 dollara (um 4,8 milljónir króna), sagði Liu.
Foxconn sýndi einnig rafmagnsstrætóinn sinn, Model T, sem verður afhentur samgöngufyrirtæki á næsta ári.
Samningurinn í Ohio er „blessun fyrir Foxconn og veitir fyrirtækinu tækifæri og möguleika á að setja saman bíla og búnað,“ skrifaði sérfræðingur Citigroup, Carrie Liu, í nýlegri frétt. Fyrirtækið cinnur nú að því að ákveða staðsetningu bílverksmiðju í Evrópu, sagði Liu.
Apple-bíll fullkominn vinningur
Apple bíllinn væri fullkominn vinningur fyrir upprennandi framleiðanda rafbíla. Núverandi samstarf er Foxconn í hag, því í dag er sterkt samband við bandaríska rafeindatækni risann. Áralangt samstarf hefur vaxið mjög eftir því sem Apple hefur bætt við vöruflokkum og vörur Apple standa nú fyrir um 50 prósent af árlegri sölu Foxconn.
Enn langt í Apple-bílinn
Það eru enn nokkur ár þar til Apple-bíllinn kemur á markað og fyrirtækið hefur orðið fyrir áföllum, þar á meðal þegar yfirmaður bílaverkefnisins fór til Ford nýlega.
Apple bíll hefur í mörg ár verið þversögn – hans hefur verið beðið með eftirvæntingu, en fyrirtækið hefur nánast ekkert sagt um hann opinberlega.
Í iðnaðinum hefur verið fylgst grannt með vísbendingum um hvaða fyrirtæki gætu smíðað rafbíl Apple. Þó heimildir hafi áður sagt að tæknirisinn vilji setja bíl á markað fyrir árið 2024, hefur Apple ekki gefið upp sérstakar áætlanir.
Foxconn ekki byrjaðir að selja rafbíla enn
Foxconn hefur ekki enn byrjað að selja neina bíla í kjölfar þess að rafbílagrunnur þeirra var kynntur í fyrra. Það ætlar að hefja fjöldaframleiðslu á Endurance rafpallbílnum frá Lordstown í Ohio í apríl, að sögn manns sem þekkir áætlun þeirra.
(Reuters og Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Jeppaáhugamenn hafa beðið með óþreyju eftir því að hulunni yrði endanlega svift af hinum nýja landRover Defender, arftaka gamla góða landRover-jeppans.
Svissneskir bræður leitast við að koma landi sínu aftur í hóp bílaframleiðanda með því að endurvekja klassískan smábíl frá 1950 með rafmagni...
Sá sem þetta skrifar á tvo bíla – en báða gamla, annan liðlega 12 ára og hinn nærri 20 ára. Þar af leiðir að í þessum bílum eru engir nútímalegir skjáir eða leiðsögukerfi...
Næstu sex mánuðina munum við hjá Bílablogg hafa splunkunýjan VW ID.4 í okkar höndum. Í samstarfi við Heklu munum við gera nokkra skemmtilega og upplýsandi þætti...