Sérsniðnar gerðir af Ford Bronco og Ford Bronco Sport verða á meðal þess sem bílaframleiðandinn sýnir á SEMA sýningunni 2021
Ný aukahlutalína
Ford ætlar líka að kynna línu af nýjum aukahlutum á SEMA, eins og nýjan Ford Performance Parts framdrifsbúnað sem styður allt að 5.38:1 gírun drifs, stýrisbúnað fyrir erfiðar aðstæður og öflugari stýrisenda. Ford kemur líka með ný 17 tommu Method Race felgusett fyrir Bronco.
Jepparnir sex
Bronco frá BDS Suspensions
Bronco frá BDS Suspensions árið 2021 er rauður á litinn, hann er tveggja dyra og sérstaklega hannaður fyrir forgangsakstur. Hann er með 4 tommu BDS efra armakerfi (e. upper control arm system), BDS stillanlega arma að aftan og togstöng, auk þess sem hægt er að aftengja jafnvægisstöngina.
2021 Bronco frá Tucci Hot Roads
Næstur í röðinni er Bronco frá Tucci Hot Roads, sem er byggður á fjögurra dyra Badlands seríu Bronco. Hann er hannaður sem hinn fullkomni snjóbíll enda á beltum í stað dekkja. Bíllinn er með hliðaropnun að geymslurými, flata snjóbrettagrind á toppnum og Yakima LockNLoad þakgrind. Rigid ljósastiku hefur einnig verið bætt við til að lýsa upp veginn fram undan.
2021 Bronco RTR Fun-Runner frá RTR Vehicles
Bronco RTR Fun-Runner frá RTR Vehicles var búinn til af Ford Performance-smiðnum Vaughn Gittin Jr. Hann er byggður á tveggja dyra Badlands gerðinni og kemur með hljóðkerfi, lakkhlífðarfilmum, stigbrettum og sportpústi. Bronco RRT Fun-Runner hefur einnig meiri getu í torfærum með Ultimate Dana 44 FDU framhásingu og Ultimate Dana 60 „semi-float“ afturhásingu, öfluga CV öxla frá RCV Performance og kröftugu loftinntaki. Bíllinn er með Fox Performance Elite 2.5 fjöðrunarkerfi og á 37 tommu torfærudekkjum sem skrúfuð eru föst á álfelgur frá RTR Tech með „bead-lock“.
2021 Bronco BAJA FORGED smíðaður af LGE-CTS Motorsports
Síðastur Bronco-bílanna er Bronco Baja Forged frá LGE-CTS Motorsports, sem var búinn til af Theresa Contreras, gömlum og góðum Ford SEMA bílasmiði, sem er hönnuður og stofnandi Baja Forged Parts. Bíllinn er byggður á fjögurra dyra Outer Banks gerðinni og er með innbyggðan ísskáp, hljóðkerfi, farangursrými sem má hólfa niður (cargo organizer) og Baja Forged stuðara. Jeppinn er með Icon Vehicle Dynamics 3.0 lyftibúnað á fjöðrun, felliborð í afturhlera, Baja Forged brettakanta, ljóskastara og hlíf yfir varadekkið.
2021 Bronco Sport BAJA FORGED frá LGE-CTS Motorsports
Bronco Sport Baja Forged frá LGE-CTS Motorsports er byggður á Bronco Sport Badlands. Hann fær 2 tommu hækkun á fjöðrun, undirvagnsvörn, torfæruljós, brettakanta og Borla útblásturskerfi. Hann er einnig með Baja Forged rörlaga stuðara að framan og aftan, ljós á þaki, Warn-spil og dráttarkróka.
2021 Bronco Sport frá CGS Performance Products
Síðastur en ekki sístur er Bronco Sport frá CGS Performance Products, einnig byggður á Badlands-gerðinni. Hann fær sérstakar sætisáklæði, geymsluhólf undir aftursætum, undirvagnsljósabúnað, brettakanta, afturvindskeið og ljóskastara. Til að auka afköstin eru meðal annars CGS Performance loftinntak og keramikhúðað útblásturskerfi.
(frétt á vef Torque Report)
Aðrar umfjallanir
Jaguar Land Rover hefur gefið til kynna að Jaguar muni ýta undir frekari markaðssetningu á hærra sviði markaðarins eftir að fyrirtækið tilkynnti „Reimagine“...
Nýr fjölnotabíll sem byggður er á sendibíl er við það að bætast í hópinn hjá Mercedes. Nýliðinn, sem heitir T-Class, verður frumsýndur 26. apríl...
GM bauð nýlega fjölmiðlum í „rafbíla-vinnustofu“ sína í Michigan, þar sem þeir sýndu lítinn rafmagns pallbíl...